Mál nr. 34/2025 Úrskurður 8. maí 2025
Mál nr. 34/2025 Eiginnafn: Bölmóður (kk.)
Hinn 8. maí 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 34/2025 en erindið barst nefndinni 31. mars 2025.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Bölmóður (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bölmóðs, brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi og er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Hér reynir aftur á móti á skilyrði um að eiginnafn megi ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Fyrri liður nafnsins er Böl- en nafnorðið böl merkir ‚óhamingju eða ólán‘. Þá merkir nafnorðið bölmóður ‚hugarástand svartsýni og vonleysi‘. Nefndin telur að nafnið Bölmóður hafi mjög neikvæða merkingu. Í athugasemdum með frumvarpi til 5. gr. laga um mannanöfn kemur fram að beita beri ákvæðinu þegar telja megi merkingu nafns neikvæða eða óvirðulega. Er beiðninni því hafnað.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Bölmóður (kk.) er hafnað.