Mál nr. 31/2025 Úrskurður 8. maí 2025
Mál nr. 31/2025 Eiginnafn: Hel (kvk.)
Hinn 8. maí 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 30/2025 en erindið barst nefndinni 25. mars 2025.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Beiðni um eiginnafnið Hel (kvk.) hefur í tvígang verið hafnað af mannanafnanefnd á þeim grundvelli að nafnið sé þannig að það geti orðið nafnbera til ama, sbr. úrskurði nefndarinnar í málum nr. 131/2021 og 98/2016. Er ekki tilefni til að víkja frá fyrri úrskurðum en þar var synjun meðal annars studd þeim rökum að orðið hel hafi neikvæða merkingu og að orðið hel sé tekið sem dæmi um nöfn sem talin verði ósiðleg, niðrandi eða meiðandi þaning að geti valdið nafnbera ama, í frumvarpi með 5. gr. laga um mannanöfn. Um frekari rökstuðning er vísað til téðra úrskurða.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Hel (kvk.) er hafnað.