Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 86/2020 Úrskurður 21. september 2020

Mál nr. 86/2020                     Millinafn:       Kalddal

                                               

 

 

Hinn 21. september 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 86/2020 en erindið barst nefndinni 11. september.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama

Auk þess má mafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Kalddal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla né kvenna. Nafnið Kalddal uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi laganna.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um millinafnið Kalddal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum