Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 39/2021 Úrskurður 25. mars 2021

Mál nr. 39/2021                     Aðlögun kenninafns: Pétursson

                                            

 

Hinn 25. mars 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2021.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 22. mars 2021, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og xxx um að sonur þeirra skuli vera kenndur til föður síns, Petrs, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau að kenninafn drengsins verði skráð í þjóðskrá Pétursson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Pétursson.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum