Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 128/2022 Úrskurður 7. október 2022

Mál nr. 128/2022                  Millinafn:       Úlfstað

 

 

 

Hinn 7. október 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 128/2022 en erindið barst nefndinni 30. september. 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

 

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Úlfstað er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sé hefð sem eiginnafn karla eða kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn. Nafnið Úlfstað uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Úlfstað er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum