Mál nr. 122/2024 Úrskurður 13. desember 2024
Mál nr. 122/2024 Eiginnafn: Leynd (kvk.)
Hinn 13. desember 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 122/2024 en erindið barst nefndinni 2. desember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Leynd (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Leyndar, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Leynd (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.