Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 59/2021 Úrskurður 1. júlí 2021

Mál nr. 59/2021                    Millinafn:       Kamban

 

 

 

Hinn 1. júlí 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 59/2021, en erindið barst nefndinni 18. maí. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 26. maí 2021 en afgreiðslu þess frestað

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Kamban telst vera ættarnafn í skilningi mannanafnalaga og þess vegna er ekki hægt að samþykkja það á mannanafnaskrá.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Kamban er hafnað.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum