Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 154/2021 Úrskurður 17. nóvember 2021

Mál nr. 154/2021                  Eiginnafn:     Frostsólarún (kvk.)

 

Hinn 17. nóvember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 154/2021 en erindið barst nefndinni 25. október.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan. Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þar segir einnig að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Enn fremur segir að skilyrðið komi í veg fyrir nýmyndanir sem brjóta í bág við íslenskar orðmyndunarreglur, t.d. þríliðuð nöfn eins og Guðmundrún, Guðmundpáll og Ragnhildmundur.

Eiginnafnið Frostsólarún (kvk.) fer gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í íslensku þar sem um þríliðað nafn er að ræða, samsett úr þremur rótum: frost, sól og rún. Nafnið telst þess vegna brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Frostsólarún (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum