Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 51/2023 Úrskurður 4. maí 2023

Mál nr. 51/2023                    Eiginnafn:     Gró (kvk.)

Hinn 4. maí 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 51/2023 en erindið barst nefndinni 25. apríl.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2.  Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Gró (kvk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, þrjú og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Gróar, er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Hér reynir hins vegar hugsanlega á skilyrði númer tvö. Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þar segir einnig að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Við fyrstu sýn virðist sem þetta eigi við um Gró þar sem það er skylt nafninu Gróa sem er fornt í málinu og er nú borið af 110 sem fyrsta eiginnafn og 103 sem annað eiginnafn samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá. Það er hins vegar hefð fyrir því í málinu að bæði sterkar og veikar myndir nafna geti komið fyrir sem séu sjálfstæð nöfn, t.d. Fríða/Fríður, Heiða/Heiður. Sama gildir um Gró/Gróa og er því ekki ástæða til að hafna nafninu Gró.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gró (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum