Mál nr. 16/2025 Úrskurður 20. febrúar 2025
Mál nr. 16/2025 Aðlögun kenninafns: Agnes
Hinn 20. febrúar 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 16/2025.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 3. febrúar 2025, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX um að hún verði kennd við móður sína, Agniesza, en að nafn hennar verði aðlagað að íslensku máli, Agnes.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á móðurkenninguna Agnesardóttir.