Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 154/2022 Úrskurður 10. desember 2022

 

Mál nr. 154/2022                  Eiginnafn:     Borghild (kvk.)

 

 

Hinn 10. desember 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 150/2022 en erindið barst nefndinni 4. nóvember.  

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Með úrskurði uppkveðnum 2. apríl 2012 í mál nr. 16/2012 hafnaði mannanafnanefnd beiðni um eiginnafnið Borghild á þeim grunni að nafnið stríði gegn hefð nafnsins Borghildur. Með úrskurði í máli nr. 90/2022 var beiðni um eiginnafnið Hild aftur á móti samþykkt án sérstakrar umfjöllunar um hvort það nafn stríði gegn hefð nafnsins Hildur. Til athugunar er hér einnig hvort hefð sé fyrir nafninu Borghild.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

 

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

 

  1. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

  1. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

  1. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði nafns sem þegar er á mannanafnaskrá. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z. Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera tvær konur nafnið Borghild í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Sú eldri er fædd árið 1943. Þá kemur nafnið fyrir í þremur manntölum frá 1703 til 1920. Telst því hefð fyrir nafninu á grundvelli 1. gr. vinnulagsreglnanna og það samþykkt með vísan til alls framanritaðs.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Borghild (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum