Mál nr. 27/2025 Úrskurður 24. mars 2025
Mál nr. 27/2025 Eiginnafn: Vetle (kk.)
Hinn 24. mars 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2025 en erindið barst nefndinni 19. mars 2025.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Vetle (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Vetles, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Vetle (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.