Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 149/2021 Úrskurður 17. nóvember 2021

Mál nr. 149/2021                  Eiginnafn:     Ullr (kk.)

 

 

Hinn 17. nóvember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 149/2021 en erindið barst nefndinni 14. október.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Ekki getur talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls að rita nefnifallsmynd nafnsins Ullur án u. Þess vegna er einungis hægt að fallast á ritháttinn Ullr ef hann hefur áunnið sér hefð í íslensku máli.

 

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

  1.  Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.

 

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn nafnið Ullr í þjóðskrá. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920.

Hins vegar liggur fyrir að nafnið Ullr kemur fyrir í þessari ritmynd í alþekktum útgáfum á Eddukvæðum og því telst nafnið hafa unnið sér menningarhelgi samkvæmt 3. gr. vinnulagsreglna mannanafnanefndar um hefð, sbr. úrskurð nefndarinnar frá 24. júní 2010 í máli 71/2009 (Hávarr).

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ullr (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarmynd eiginnafnsins Ullur (kk.).

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum