Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 101/2021 Endurupptökubeiðni Úrskurður 9. september 2021

Mál nr. 101/2021                  Endurupptökubeiðni

                                                Eiginnafn:     Tatiana (kvk.) (til vara Tatyana (kvk.))

 

 

Mannanafnanefnd hefur borist beiðni, dags. 18. ágúst sl., þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 36/2021 Tatiana/Tatyana.

Í upphaflegri umsókn, sem barst nefndinni 12. mars sl., var beðið um að eiginnafnið Tatiana (kvk.) yrði fært á mannanafnaskrá, en til vara eiginnafnið Tatyana (kvk.). Með úrskurði mannanafnanefndar í málinu frá 25. mars sl. var umsókninni hafnað og taldi nefndin að hvorugur rithátturinn uppfyllti skilyrði laga um mannanöfn, nr. 45/1996, þar sem ekki væri ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki teldist hefð fyrir þessum ritháttum. Vegna þessa máls ákvað mannanafnanefnd að bæta á mannanafnaskrá rithætti umrædds eiginnafns sem samræmdist íslenskum ritreglum, þ.e. Tatjana (kvk.).

Hinn 15. apríl sl. barst mannanafnanefnd beiðni um endurupptöku málsins þar sem óskað var eftir að nefndin tæki afstöðu til ritháttarins Tatíana til viðbótar við þá rithætti sem tilteknir voru í upphaflegri umsókn. Endurupptökubeiðnin var tekin fyrir 21. apríl sl. og féllst nefndin á hana og með nýjum úrskurði var rithátturinn Tatíana samþykktur á mannanafnaskrá, sbr. mál nr. 36B/2021.

Í endurupptökubeiðninni frá 18. ágúst sl. er bent á að mannanafnanefnd hafi þann 1. júlí sl. samþykkt breytingar á vinnulagsreglum nefndarinnar og óskað var eftir að nefndin tæki aftur fyrir upphaflega beiðni í ljósi breytinganna. Þar sem ljóst er að umræddar breytingar á vinnulagsreglum mannanafnanefndar við túlkun á hefð hafa þýðingu fyrir málið fellst nefndin á að taka það upp aftur og fylgir nýr úrskurður í málinu hér á eftir sem fengið hefur málsnúmerið 101/2021.

Hinn 9. september 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 101/2021:

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli er sótt um nafnið Tatiana (kvk.) en til vara um ritháttinn Tatyana (kvk.). Eiginnafnið Tatiana uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu Tatiönu, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú. Nafnið er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslenskt máls þar sem stafasambandið -ia- er ekki ritað í ósamsettum orðum í íslensku. Er því aðeins hægt að fallast á ritháttinn Tatiana að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

  1.  Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.


Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera fjórar konur, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, sbr. 2. lið þeirra, eiginnafnið Tatiana í þjóðskrá, sú elsta fædd 1980. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Rithátturinn uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna. Eiginnafnið Tatiana er af erlendum uppruna, komið úr latínu, en þar og í mörgum öðrum málum tíðkast rithátturinn Tatiana. Nafnið telst því uppfylla skilyrði 4. liðar vinnulagsreglnanna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Tatiana (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttur nafnanna Tatíana (kvk.) og Tatjana (kvk.).


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum