Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 149/2022 Úrskurður 30. nóvember 2022

Mál nr. 149/2022                  Aðlögun kenninafns: Júlíönudóttir og -son.

           

 

 

Hinn 30. nóvember 2022  kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 149/2022.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 29. nóvember 2022, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og Juliönu xx um að börn þeirra verði kennd til móður sinnar og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau þess að kenninafn barna þeirra verði skráð í þjóðskrá Júlíönudóttir og Júlíönuson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á móðurkenninguna Júlíönudóttur og Júlíönuson.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum