Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 92/2023 Úrskurður 2. október 2023

Mál nr. 92/2023                    Eiginnafn:     Kaia (kvk.)

Hinn 2. október 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 92/2023 en erindið barst nefndinni 12. september.    

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Kaia uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Kaiu, brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Nafnið er aftur á móti ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls af því að samstafan ai kemur ekki fyrir í ósamsettum orðum. Þá er nafnið ritháttarafbrigði af nafninu Kaja og aðeins hægt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir þessum rithætti þess.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin uppfærði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.  Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera tvær konur nafnið Kaia í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Sú eldri er fædd árið 2002. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920 og telst þannig ekki hefð fyrir nafninu í skilningi 1. gr. reglnanna. Aftur á móti telur nefndin ekki hjá því komist að líta til þess að sambærilegt karlmannsnafn, Kai, var samþykkt með úrskurði mannanafnanefndar í máli nr. 26/2015. Þegar metið er hvort tiltekinn ritháttur nafns hafi unnið sér hefð í íslensku virðist eðlilegt að líta til þess hvort samsvarandi ritháttur tíðkist í öðru nafni sem hefur sérstök tengsl við nafnið sem verið er að meta, svo sem þegar kvenmannsnafn er leitt af karlmannsnafni. Með vísan til þess lítur mannanafnanefnd svo á að hefð sé fyrir nefndum rithætti nafnsins og fellst á beiðni umsækjanda.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kaia (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Kaja. 

Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum