Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 95/2020 Úrskurður 24. nóvember 2020

Mál nr. 95/2020                     Eiginnafn:      Regin (kk.)

Hinn 24. nóvember 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 95/2020 en erindið barst nefndinni 28. september.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Ritháttur nafnsins Regin er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Í elstu íslensku ritheimildum kemur karlmannsnafnið Reginn fyrir sem dvergsheiti og er ef til vill einnig eitt af heitum Óðins. Það er skylt fleirtöluorðinu regin (hvorugkyn) sem merkir 'goð' eða 'goðmögn', en í þeirri merkingu er orðið ekki notað í eintölu. Samkvæmt skilyrði nr. 3 hér að ofan (3. málsl. 1. mgr. 5. gr. mannanafnalaga) skal rita mannanöfn samkvæmt almennum ritreglum íslensks máls, en um þær er vísað til auglýsingar mennta- og menningarmálaráðuneytisins, nr. 695/2016, um setningu íslenskra ritreglna. Þar kemur fram í lið 12.4 að í karlkynsnafnorðum sem enda á sérhljóði (a, i eða u) og nefhljóðinu n sé ritað tvöfalt nn í nefnifalli en einfalt n í öðrum föllum, t.d. aftann, aftan, aftni, aftans; himinn, himin, himni, himins; morgunn, morgun, morgni, morguns.

Karlmannsnafnið Reginn er á mannanafnaskrá, ritað með -nn í nefnifalli, skv. íslenskum ritreglum, en með einu n-i í öðrum beygingarmyndum. Ritháttur nafnsins með einu n-i í nefnifalli er ekki heimill skv. lögum nema hefð sé fyrir þeim rithætti nafnsins.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera þrír karlar, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, eiginnafnið Regin í þjóðskrá. Sá elsti er fæddur 1983. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna telst ekki vera hefð í íslensku fyrir þessum rithætti nafnsins.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að í lagaákvæðinu sem hér um ræðir, þ.e. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr., er talað um hefð fyrir rithætti tiltekins nafns. Hefð fyrir samsvarandi rithætti í öðru nafni myndar ekki grundvöll hefðar fyrir nafnið sem verið er að meta. Til dæmis er nafnið Walter ekki ritað í samræmi við almennar íslenskar ritreglur þar sem bókstafurinn w er ekki hluti af íslensku stafrófi. Hins vegar er Walter á mannanafnaskrá með þessum rithætti þar sem nafnið telst hafa unnið sér hefð í íslensku. Þetta hefur þó ekki í för með sér að bókstafurinn w hafi unnið sér hefð og leiðir ekki til þess að önnur nöfn rituð með w, t.d. Wilma, teljist hafa unnið sér hefð í málinu. Sama gildir um ritun karlkynsnafnorða sem enda á sérhljóði og n. Ekki er hægt að fallast á að hefð sé fyrir rithættinum Regin í nefnifalli á þeirri forsendu að hefð sé fyrir því að rita nafnið Auðun með einu n í nefnifalli. Þessi túlkun er í samræmi við texta laga, nr. 45/1996, um mannanöfn og greinargerð með frumvarpi að lögunum.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Regin (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum