Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 48/2023 Úrskurður 4. maí 2023

Mál nr. 48/2023                    Eiginnafn:     Eyr (kvk.)

Hinn 4. maí 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 48/2023 en erindið barst nefndinni 30. mars.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2.  Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Eyr (kvk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, þrjú og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Eyrar, er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Hér reynir aftur á móti á skilyrði númer tvö. Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þar segir einnig að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Nefndin lítur svo á að eiginnafnið Eyr sé breyting á rótgróna nafninu Eir sem stríðir gegn hefð þess og er því ekki hægt að samþykkja það.        Nafnið Eir er ævafornt, en Eir var gyðja lækninga í norrænni goðafræði, og er það nú borið af 21 sem fyrsta eiginnafn og 454 sem annað eiginnafn samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eyr (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum