Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 36/2023 Úrskurður 30. mars 2023

Mál nr. 36/2023                    Eiginnafn:     Dal

 

 

Hinn 30. mars 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 36/2023 en erindið barst nefndinni 17. mars.   

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Eiginnafnið Dal tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dals, er ritað í samræmi við almennar ritreglur og er nafnbera ekki til ama. Í máli þessu reynir á skilyrði númer 2 hér að framan þar sem eiginnöfn hafa almennt ekki verið samsett úr liðum á borð við -dal, -fjörð, -fell, -holt o.s.frv. heldur eru slíkir liðir einkennandi fyrir ættarnöfn og millinöfn auk þess sem Dal er til sem ættarnafn. Hér á landi hafa aftur á móti sum ættarnöfn jafnframt tíðkast sem eiginnöfn, s.s. Smári, Þór, Viðar, Hólm, o.fl. Slík notkun hefur verið látin átölulaus og kemur fram í skýringum sem fylgdu 4. mgr. 7. gr. frumvarps til laga um mannanöfn að hún hafi „því unnið sér nokkurn hefðarrétt“. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár þá bera 8 einstaklingar eiginnafnið Dal sem uppfylla skilyrði 2. gr. vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð. Sá elsti er fæddur 1963. Þá kemur nafnið fram í 2 manntölum frá 1703 til 1920. Með tilliti til hefðar telst nafnið þannig ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er samþykkt.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dal er samþykkt og skal nafnið fært á skrá yfir kynhlutlaus nöfn.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum