Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 22/2025 Úrskurður 24. mars 2025

Mál nr. 22/2025                    Eiginnafn:     Heli (kvk.)

Hinn 24. mars 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 22/2025 en erindið barst nefndinni 26. febrúar 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Heli (kvk.) tekur íslenskri beygingu, Heli – um Heli – frá Heli – til Heli. Til samanburðar beygjast eiginnöfnin Þyri og Elvi (kvk.) á sama hátt og ýmis kvenkyns samnöfn, s.s. gleði og speki. Eiginnafnið Heli telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Heli (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá. 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta