Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 61/2022 Úrskurður 24. maí 2022

Mál nr. 61/2022                    Eiginnafn:     Jónborg (kvk.)

Hinn 24. maí 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 61/2022 en erindið barst nefndinni 2. maí. 

Mannanafnanefnd hefur borist ábending um að eiginnafnið Jónborg (kvk.) sé ekki á mannanafnaskrá.

Eiginnafnið Jónborg (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jónborgar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jónborg (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum