Mál nr. 128/2024 Úrskurður 3. febrúar 2025
Mál nr. 128/2024 Eiginnafn: Öxi (kvk.)
Hinn 3. febrúar 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 128/2024 en erindið barst nefndinni 16. desember 2024.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Öxi (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Axar/Öxar, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Öxi (kvk.) er samþykkt og og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.