Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 102/2021 Úrskurður 9. september 2021

Mál nr. 102/2021                  Millinafn:       Sæm

 

 

 

Hinn 9. september 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 102/2021 en erindið barst nefndinni 19. ágúst.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Sæm getur talist dregið af íslenskum orðstofni, sbr. t.d. sögnina sæma, og telst að öðru leyti uppfylla ofangreind skilyrði um millinöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Sæm er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum