Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 35/2024 Úrskurður 20. mars 2024

Mál nr. 35/2024                    Eiginnafn:     Móari (kk.)

                                              Millinafn:       Móari

Hinn 20. mars 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 35/2024 en erindið barst nefndinni 4. mars. Nefndina skipa Auður Björg Jónsdóttir, Hrafn Sveinbjarnarson og Jóhannes Bjarni Sigtryggsson

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Móari (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Móara, og stríðir hvorki gegn hljóðskipunar- né beygingarreglum íslensks máls. Í málinu reynir hins vegar á 2. mgr. 5 gr. laganna um að nafnið megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

Í athugasemdum með frumvarpi núgildandi laga um mannanöfn segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“ Þær hefðir taka sérstaklega til gerðar mannanafna og merkingar þeirra. Orðið Móari er samnafn, nánar tiltekið íbúaheiti, þ.e. Móari er sá sem býr eða á rætur að rekja til bæjarins Ysta-Móa í Fljótum. Önnur dæmi um íbúaheiti eru til að mynda Reykvíkingur, Gaflari, Keldhverfingur, sbr. A liður greinar 1.2.3.2 íslenskra ritreglna, sbr. auglýsingar nr. 695/2016 og 800/2018 með síðari breytingum. Íbúaheiti hafa ekki verið notuð sem eiginnöfn og nöfn af því tagi eru ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli og brjóta gegn íslensku málkerfi. Er því ekki unnt að fallast á eiginnafnið Móari.

Umsækjandi óskar þess til vara að nafnið verði samþykkt sem millinafn. Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Mórari er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki unnið sér hefði sem millinafn og er ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Þar sem telja verður að nafnið hafi nefnifallsendingu uppfyllir það ekki heldur skilyrði 6. gr. fyrrnefndra laga og verður að hafna því.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Móari (kk.) er hafnað.

Beiðni um millnafnið Móari er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum