Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 45/2020 Úrskurður 17. ágúst 2020

Mál nr. 45/2020                     Millinafn:       Nikk

                                               

 

 

Hinn 17. ágúst 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 45/2020 en erindið barst nefndinni 5. júní. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 22. júní en afgreiðslu þess frestað.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • •nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama

Auk þess má mafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Nikk getur talist dregið af íslenskum orðstofni, sbr. nafnorðið nikka. Einnig er til í óformlegu máli sagnorðið nikka (til e-s) og nafnorðið nikk, leitt af sagnorðinu. Millinafnið Nikk telst einnig að öðru leyti uppfylla skilyrði 6. gr. mannanafnalaga. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er nafnið Nikk heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laganna.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um millinafnið Nikk er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum