Mál nr. 124/2024 Úrskurður 13. desember 2024
Mál nr. 124/2024 Eiginnafn: Hó (kk.)
Hinn 13. desember 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 124/2024 en erindið barst nefndinni 6. desember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Orðið hó er upphrópun í íslensku sem lýsir gleði eða kátínu eða er kallorð smala. Ekki er venja fyrir því að upphrópanir, t.d. hæ, úff, æ, ha, jæja, séu gerðar að mannanöfnum og telur mannanafnanefnd því að nafnið Hó geti orðið nafnbera til ama.
Hafa ber í huga að samþykki mannanafnanefnd eiginnafn, færist það á mannanafnaskrá. Það kann að leiða til þess að börn geta hlotið það, en mikilvægir hagsmunir barna eru að þeim séu ekki gefin nöfn sem telja verður ósiðleg, niðrandi eða meiðandi sbr. greinargerð með frumvarpi til laga um mannanöfn.
Bent skal á að fullveðja einstaklingur sem hefur í hyggju að kjósa sér nafn af einhverjum ástæðum sem að öllu jöfnu kynni að valda barni sem nafnhafa ama, getur í daglegu lífi sínu viðhaft það nafn þótt það fái ekki opinbera skráningu hjá stjórnvöldum og færist ekki á mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd hlutast ekki til um gælunöfn, listræn nöfn eða önnur þau nöfn eða nefni sem kunna að tíðkast í daglegu lífi utan opinberrar skráningar.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Hó (kk.) er hafnað.