Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 42/2022 Endurupptökubeiðni Úrskurður 25. apríl 2022

Endurupptaka.

Mál nr. 42/2022                           Eiginnafn:       Theadór (kk.)

 

 

 

Hinn 25. apríl 2022 tekur mannanafnanefnd fyrir beiðni, dags. 30. mars 2022, þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 77/2019.

Með úrskurði mannanafnanefndar frá 21. september 2020 í máli nr. 77/2020 var umsókn um eiginnafnið Theadór hafnað. Niðurstaða nefndarinnar var að nafnið uppfyllti ekki skilyrði 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn, nr. 45/1996, sem kveður á um að ritháttur nýs eiginnafns skuli vera í samræmi við almennar ritreglur íslensks ritmáls eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, þar sem samstafan th er ekki notuð í ósamsettum orðum í íslensku nema í ritmyndum nafna sem öðlast hafa hefð. Enginn einstaklingur, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna nefndarinnar, ber nafnið og taldist því ekki hefð fyrir rithættinum.

Í endurupptökubeiðninni er bent á að mannanafnanefnd hafi þann 1. júlí 2021 samþykkt breytingar á vinnulagsreglum nefndarinnar og er óskað eftir að nefndin taki aftur fyrir umsókn um fyrrgreint nafn í ljósi breytinganna.

Þar sem umræddar breytingar á vinnulagsreglum mannanafnanefndar við túlkun á hefð hafa þýðingu í málinu fellst nefndin á að taka það upp á ný.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Theadór (kk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Theadórs, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú um að nafnið skuli ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls svo sem framar greinir og því aðeins unnt að fallast á nafnið teljist ritháttur þess hafa unnið sér hefð.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin uppfærði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn einstaklingur nafnið Theadór í þjóðskrá og það kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Aftur á móti er eiginnafnið Theador af erlendum uppruna og er afbrigði nafnsins Theodore. Ritháttur þessi tíðkast meðal annars í Grikklandi og enskumælandi löndum. Telur nefndin því skilyrði til að samþykkja nafnið Theadór með vísan til 4. gr. vinnulagsreglnanna.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Theadór (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum