Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 120B/2021 Endurupptökubeiðni Úrskurður 12. október 2021

Mál nr. 120B/2021                Endurupptökubeiðni

                                                Millinafn:       Villiljós

 

 

 

 

 

Mannanafnanefnd hefur borist beiðni, dags. 23. september sl., þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 120/2021 Villiljós. Ástæða beiðnarinnar er að með upphaflegri umsókn sinni hafði úrskurðarbeiðandi óskað eftir að taka upp nafnið Villiljós sem millinafn en í úrskurði mannanafnanefndar í málinu var fjallað um nafnið sem eiginnafn og það samþykkt sem slíkt. Óskað er eftir því að mannanafnanefnd taki málið upp aftur og fjalli um nafnið Villiljós sem millinafn.

Að mati mannanafnanefndar stendur ekkert í vegi fyrir því verða við þessari beiðni. Nýr úrskurður í málinu fylgir hér á eftir og hefur hann fengið málsnúmerið 120B/2021:

Hinn 12. október 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 120B/2021:

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Villiljós er dregið af íslenskum orðstofnum og telst að öðru leyti uppfylla ofangreind skilyrði um millinöfn.

Úrskurðarorð:

Eiginnafnið Villiljós (kynhlutlaust) skal tekið af mannanafnaskrá.

Beiðni um millinafnið Villiljós er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum