Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 159/2022 Úrskurður 5. janúar 2023

Mál nr. 159/2022 Eiginnafn: Kisa

Hinn 5. janúar 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 159/2022 en erindið barst nefndinni 9. desember. 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Kisa tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kisu, og er ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Aftur á móti reynir hér á hvort uppfyllt sé skilyrði um að nafn megi ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Nafnið Kisa er leitt af samnafninu kisa sem er gæluheiti vel þekktrar dýrategundar. Þótt dýraheiti séu til sem mannanöfn, svo sem Björn, Úlfur, Arna og Lóa, eru gæluheiti húsdýra almennt ekki notuð sem mannanöfn.

Í greinargerð með lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, segir að það séu auðsæilega mikilvægir hagsmunir barna að þeim séu ekki gefin nöfn sem telja verður ósiðleg, niðrandi eða meiðandi. Jafnframt er bent á að ákvæðið um að nafn megi ekki vera nafnbera til ama sé vandmeðfarið þar sem erfitt sé að leggja hlutlægt mat á ama. Áréttað er að ákvæðinu skuli beita mjög varlega og er tekið fram að eðlilegt sé að ákvæðinu sé því aðeins beitt að telja megi merkingu nafns neikvæða eða óvirðulega. Þegar svo háttar að fullorðinn einstaklingur sækir um að taka upp nýtt nafn er ekki unnt að fullyrða að nafnið verði nafnbera til ama. Hins vegar verður ekki hjá því komist að hafa í huga að með því að setja nafn á mannanafnaskrá er það um leið orðið mögulegt nafn fyrir nýfædd börn. Mannanafnanefnd ber því að meta hvort nafn sé þess eðlis að það geti orðið barni til ama. Telur mannanafnanefnd merkingu nafnsins Kisa óvirðulega, geti orðið nafnbera til ama og uppfylli því ekki skilyrði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kisa er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum