Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 9/2021 Úrskurður 24. febrúar 2021

Mál nr. 9/2021                       Eiginnafn:      Sólarr (kk.)

 

 

Hinn 24. febrúar 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 9/2021 en erindið barst nefndinni 10. febrúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Litið hefur verið svo á að sá ritháttur, sem sótt er um, að nafnið endi á -arr, sé ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Á 14. öld styttist „langt r“ í bakstöðu (þ.e. aftast í orði) í áherslulitlum endingum. Dæmi: Ragnarr > Ragnar, hamarr > hamar, jöfurr > jöfur. Slík orð eru ævinlega rituð með einu r-i skv. stafsetningu nútímamáls. „Langt r“ kemur hins vegar fyrir í bakstöðu í áhersluatkvæðum í ýmsum orðum, sbr. kjarr og kurr.

 

Af þessu leiðir að niðurstaða um það hvort rétt sé að fallast á eiginnafnið Sólarr veltur á því hvort það teljist hefðað í skilningi 5. gr. laga um mannanöfn.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn nafnið Sólarr í þjóðskrá. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920.

Hins vegar liggur fyrir að nafnið Sólarr kemur fyrir í alþekktum útgáfum á Eddukvæðum og því telst nafnið hafa unnið sér menningarhelgi samkvæmt 3. gr. vinnulagsreglna mannanafnanefndar um hefð, sbr. úrskurði nefndarinnar í t.d. máli 71/2009 (Hávarr), máli 3/2011B (Annarr), máli 20/2017 (Ónarr) og máli 22/2019 (Sigarr). Nafnið Sólarr beygist svo: nf. Sólarr, þf. Sólar, þgf. Sólari, ef. Sólars.

 

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sólarr (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum