Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 100/2022 Úrskurður 10. ágúst 2022

Mál nr. 100/2022                  Millinafn:       Irisar

 

 

 

Hinn 10. ágúst 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 100/2022 en erindið barst nefndinni 21. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

 

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Irisar er ekki dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir því ekki 2. mgr. 6. gr. laganna. Umsækjandi óskar eftir að nafnið verði allt að einu samþykkt á grundvelli 3. mgr. 6. gr. þar sem segir að millinafn, sem víkur frá skilyrðum 2. mgr. sé heimilt þegar svo stendur á að eitthvert alsystkini þess sem bera á nafnið, foreldri, afi eða amma ber eða hefur borið nafnið sem millinafn. Umsækjandi óskar aftur á móti ekki eftir að fá nafn móður sinnar samþykkt sem millinafn, eða kenninafn svo sem hún á rétt á, heldur óskar hún þess að kenna sig við móður sína en stafsetja nafn móður á annan máta. Ekki eru skilyrði fyrir því í 6. gr. mannanafnalaga og beiðninni hafnað.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Irisar er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum