Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 2/2023 Úrskurður 9. febrúar 2023

Mál nr. 2/2023                      Millinafn:       Peran

 

Hinn 9. febrúar 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 2/2023 en erindið barst nefndinni 3. janúar.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

 

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Ef litið er svo á að millinafnið Peran sé dregið af íslenskum orðstofni (pera) þá er ekki hægt að samþykkja það þar sem það hefur þá nefnifallsendingu (með viðskeyttum greini). Ef hins vegar er litið svo á að nafnið sé ekki skylt orðinu pera þá er ekki heldur hægt að samþykkja það því að það er þá ekki af íslenskum orðstofni.

Nafnið uppfyllir því ekki 6. grein fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Peran er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum