Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 162/2022 Úrskurður 5. janúar 2023

Mál nr. 162/2022 Aðlögun kenninafns: Mikaelsson

Hinn 5.janúar 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 162/2022. 

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 19. desember 2022, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni Michals xxx og xx um að sonur þeirra verði kenndur við föður sinn og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau þess að kenninafn hans verði skráð í þjóðskrá Mikaelsson. 

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Mikaelsson.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum