Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 27/2020 Úrskurður 21. apríl 2020

Mál nr. 27/2020                     Millinafn:       Brettingz

 

Hinn 21. apríl 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2020 en erindið barst nefndinni 16. apríl 2020.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga mennta- og menningarmálaráðuneytis, nr. 695/2016 og 800/2018, um íslenska stafsetningu.

Millinafnið Brettingz, dregið af nafnorðinu brettingur, er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn z er ekki íslensku stafrófi. Ekki er hefð fyrir þessu millinafni í íslensku og þar af leiðandi ekki heldur fyrir einstökum ritháttum þess.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Brettingz er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum