Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

18. maí 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðÓttar Proppé

Ávarp heilbrigðisráðherra við opnun Blóðskimunarseturs

Ávarp Óttars Proppé heilbrigðisráðherra við opnun Blóðskimunarseturs
Húsi Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, 18. maí 2017

Góðir gestir

Það hefur verið einkar ánægjulegt að fylgjast með Blóðskimun til bjargar – þjóðarátaki gegn mergæxlum.

Þjóðarátakið dregur nefnilega saman nokkra af þeim þráðum sem eru svo mikilvægir fyrir okkur sem samfélag.

Í fyrsta lagi er það vísindastarfið, hin sífellda leit að nýrri þekkingu sem með einhverjum hætti mun bæta líf okkar.

Og markmið Blóðskimunar til bjargar er að leita leiða til að bæta lífsskilyrði, og helst finna lækningu fyrir, mergæxlissjúklinga.

Í öðru lagi er það heilbrigðiskerfið okkar sem teygir sig um allt landið og tryggir að einstaklingarnir geti fengið bót sinna meina þegar þess gerist þörf.

Heilbrigðiskerfið mun njóta góðs af þessari mikilvægu rannsókn þegar fram líða stundir og koma til með að nýta niðurstöður hennar til þess að veita betri heilbrigðisþjónustu.

Hið víðfeðma net heilbrigðisþjónustunnar er líka mikilvægur þáttur í þjóðarátakinu því  það skapar forsendur til þess að hægt sé framkvæma þessa mikilvægu rannsókn og þá umfangsmiklu söfnun blóðsýna sem hún kallar á.

Í þriðja lagi er það menntakerfið okkar sem er auðvitað grunnurinn að vísindastarfinu og heilbirgðiskerfinu.

Menntakerfið sér til þess að fólk hafi tækifæri til þess að sækja sér menntun á sviði heilbrigðisvísinda og skapar þannig jarðveg fyrir tvo fyrrnefndu þræðina til að dafna.

Blóðskimun til bjargar veitir líka mörgum háskólanemum tækifæri til að taka þátt í vísindastarfi á heimsmælikvarða.

Og síðast en ekki síst er það samtakamáttur okkar allra, sem byggjum þetta land, sem er svo tamt að sýna í verki þegar þörf er á.

Það er í raun með algjörum ólíkindum hversu margir hafa skráð sig til þátttöku í Blóðskimun til bjargar en nú hafa um 75 þúsund manns af landinu skráð sig til þátttöku í áttakinu sem er meira en helmingur þeirra sem rannsóknin tekur til.

Þetta sýnir auðvitað betur en margt annað hvað vísindi, heilbrigðismál og menntun skiptir fólk miklu máli og að fólk er tilbúið að leggja sitt af mörkum til þessara mála þegar eftir því er kallað.

Í dag hefst nýr kafli hjá Blóðskimun til Bjargar með opnun móttökustöðvarinnar.

Hér verður tekið á móti þeim sem greinast með forstig mergæxlis og með mergæxli og þeim veitt ráðgjöf og aðstoð við að takast á við það.

Við vitum öll hversu erfitt það er að greinast með sjúkdóma og því skiptir sköpum að veita því fólki sem greinist góða og persónulega þjónustu.

Miðað við hversu vel Sigurður Yngvi Kristinsson og hans fólk hefur staðið að öllu hingað til þá er ég ekki í vafa um að hér verður fólk í góðum höndum.

Ég á því ekki annað eftir en að lýsa að móttökustöðin, Blóðskimunarsetrið, hefur nú formlega tekið til starfa.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum