Hoppa yfir valmynd
15. október 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Nauðsynleg styrking innviða

Svandís Svavarsdóttir - myndVelferðarráðuneytið

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar:

Fjárlög ársins 2019 endurspegla þær áherslur sem lagðar eru í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um eflingu heilbrigðiskerfisins og uppbyggingu innviða. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2019 hækka framlög til heilbrigðismála umtalsvert en hækkunin nemur samtals 12,6 milljörðum króna, að frátöldum launa- og verðlagshækkunum. Innviðir allra helstu þátta heilbrigðiskerfisins verða styrktir verulega.

Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga er forgangsmál í mínum huga og unnið er að því að lækka hana. Við innleiðingu nýs greiðsluþátttökukerfis heilbrigðisþjónustu árið 2016 var bætt 1,5 milljarði króna inn í kerfið á ársgrundvelli til að lækka kostnað sjúklinga. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019 verður bætt við tæpum 400 milljónum króna til viðbótar í þessu skyni. Auk þess bætast við 500 milljónir króna vegna nýs rammasamnings um tannlækningar aldraðra og öryrkja. Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga stuðlar að auknum jöfnuði og tryggir að enginn sé tilneyddur til þess að neita sér um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Ég hef einnig lagt áherslu á eflingu geðheilbrigðisþjónustunnar og fjárlögin endurspegla það. Geðheilbrigðisþjónusta á landsvísu innan heilsugæslunnar verður efld sérstaklega, með 650 milljóna króna framlagi til að fjölga geðheilsuteymum og fjölga stöðugildum sálfræðinga sem starfa á heilsugæslum. Þessi styrking geðheilbrigðisþjónustunnar innan heilsugæslunnar er nauðsynleg og tímabær.

Uppbygging Landspítalans við Hringbraut er stærsta og flóknasta byggingaframkvæmd næstu ára. Gert er ráð fyrir auknum framlögum til þeirra framkvæmda sem nema tæpum 4,5 milljörðum króna. Framkvæmdir við nýjan meðferðarkjarna sjúkrahússins hefjast nú í haust en skóflustunga verður tekin að meðferðarkjarnanum næstkomandi laugardag, 13. október. Fullnaðarhönnun rannsóknahúss hefst á næsta ári. Þá verður nýtt sjúkrahótel tekið í notkun en árlegur rekstrarkostnaður þess er áætlaður rúmar 400 m.kr.

Mönnun á Landspítala verður einnig styrkt, m.a. viðvera sérfræðilækna sem mun bæta þjónustu við sjúklinga. Til þessa verkefnis renna 250 milljónir króna. Enn fremur verður veitt 200 milljóna króna viðbótarframlag til að efla göngudeildarþjónustu sjúkrahússins.

Samkvæmt fjárlögum ársins 2019 verða mörg önnur mikilvæg verkefni styrkt. Sem dæmi má nefna að 200 milljónir króna verða veittar til sjúkraflutninga, 100 milljónir til að efla heimahjúkrun og 100 milljónir til fjölgunar dagdvalarrýma. Auk þess má nefna 50 milljónir króna sem renna til þess að koma á fót neyslurými fyrir langt leidda fíkla, framlög til framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma verða aukin um 440 milljónir króna og framlög til innleiðingar nýrra S-merktra lyfja verða aukin um 200 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs.

Aukin fjárframlög til ofangreindra verkefna eru til þess fallin að styrkja innviði heilbrigðiskerfisins. Sú styrking er nauðsynleg svo íslenska heilbrigðiskerfið standist samanburð við það sem best gerist í heiminum og allir landsmenn fái notið góðrar þjónustu, óháð efnahag og búsetu.

Grein heilbrigðisráðherra birtist í Fréttablaðinu 15. október 2018

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum