Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Ísland í fararbroddi í baráttunni gegn lifrarbólgu C

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar:

Í tengslum við læknadaga sem nú standa yfir var haldið málþing í Hörpu undir yfirskriftinn Útrýming lifrarbólgu C: Íslenska forvarnarverkefnið í kastljósi umheimsins. Var þar fjallað um samstarfsverkefni heilbrigðisyfirvalda hér á landi og lyfjafyrirtækisins Gilead um átak til að útrýma lifrarbólgu C á Íslandi. Verkefni sem ýtt var úr vör í október árið 2015 með það að markmiði að útrýma lifrarbólgu C hér á landi í samræmi við tilmæli Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sem skilgreinir lifrarbólgu C sem meiriháttar heilbrigðisvá. Heilbrigðisyfirvöld lögðu til fjármagn vegna framkvæmdarinnar, allt að 450 milljónir króna á þriggja ára tímabili, en Gilead lagði til lyf án endurgjalds til meðferðar allra sjúkratryggðra einstaklinga sem smitaðir eru af lifrarbólgu C hér á landi. Yfirumsjón með verkefninu var á hendi sóttvarnalæknis en miðstöð þess var á Landspítala og var unnið í nánu samstarfi við sjúkrahúsið Vog. Átakið felur í sér að öllum sem smitaðir eru af lifrarbólgu C hefur á verkefnistímanum verið boðin lyfjameðferð og hafa 95% þeirra þegið meðferð auk þess sem boðið hefur verið upp á fræðslu. Á málþinginu kom fram að Ísland telst nú leiðandi meðal þjóða heims í því mikilvæga verkefni að útrýma lifrarbólgu C. Til að styðja við og ljúka rannsóknarþætti verkefnisins, þ.e. úrvinnslu gagna og kynningu á niðurstöðunum, tók ég ákvörðun um að veita Landspítalanum sérstakt framlag, samtals 23 milljónir króna. En mikilvægt er að draga lærdóm af verkefninu í heild sinni, taka saman niðurstöður þess og miðla þeim til að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hefur gegn þessum skæða sjúkdómi. Þá er rétt að nefna að Heilbrigðisráðuneytið styrkir einnig forvarnarverkefnið Frú Ragnheiði sem Rauði krossinn rekur. Verkefninu er ætlað að tryggja þeim sem sprauta sig með fíkniefnum greiðari aðgang að hreinum áhöldum og draga þannig úr smiti. Þá bind ég vonir við að á þessu ári verði unnt að opna svokallað neyslurými í borginni en lagabreytingu þarf svo að það megi verða. Ég vil koma á framfæri þökkum til aðstandenda verkefnisins og óska þeim til hamingju með þann góða árangur sem verkefnið hefur skilað. Árangur þeirra hefur skipað Íslandi í forystu á heimsvísu í báráttunni við þá heilbrigðisvá sem lifrarbólga C er.

Grein heilbrigðisráðherra birtist í Morgunblaðinu 23. janúar 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum