Hoppa yfir valmynd
21. maí 2021 Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Reglugerð um landamæri framlengd til 15. júní

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 til 15. júní nk. Á þeim tíma er gert ráð fyrir að a.m.k. 60% þjóðarinnar, sem jafngildir 75% af þeim sem áætlað er að bjóða í bólusetningu, hafi fengið a.m.k. fyrri skammt bólusetningar. Með þessu er tekið undir sjónarmið sóttvarnalæknis um að skynsamlegt sé að halda sýnatöku á landamærum óbreyttri um sinn í því skyni að geta hafið afléttingu sýnatöku á landamærum um miðjan júní.

Sú breyting verður gerð á reglugerðinni að 1. júní verður skyldudvöl í sóttvarnahúsi vegna komu frá hááhættusvæði felld úr gildi. Það er gert vegna þess að nýgengi smita á landamærum hefur farið stöðugt lækkandi frá því að skyldudvöl á sóttvarnahúsi tók gildi. Þá hefur Evrópuríkjum fækkað á lista yfir hááhættusvæði. Notkun sóttvarnahúsa verður því færð í fyrra horf, þ.e. fyrir einstaklinga sem gert er að sæta sóttkví og eiga ekki samastað á Íslandi eða geta af öðrum sökum ekki eða vilja ekki einangra sig í húsnæði á eigin vegum.

Þá mun reglugerð dómsmálaráðherra um bann við ónauðsynlegum ferðalögum frá skilgreindum áhættusvæðum vegna COVID-19 falla úr gildi 1. júní

Á ríkisstjórnarfundi í morgun var ákveðið að áður boðað litakóðakerfi á landamærum muni ekki taka gildi. Það er gert þar sem nú er stefnt að því að aflétta hraðar aðgerðum á landamærum gagnvart öllum löndum, óháð stöðu faraldurs í þeim, en áður var talið unnt þar sem fjöldi bólusettra eykst hröðum skrefum. Við slíkar aðstæður er enginn ávinningur í því að taka upp litakóðakerfi í skamman tíma.

Stefnt er að því að hraðpróf verði notuð í stað PCR-prófa í meiri mæli vegna farar úr landi, hvort sem þar eru Íslendingar sem áætla ferðalög erlendis eða erlendir ferðamenn sem hafa dvalið á Íslandi. Vinna við slíkt fyrirkomulag er í gangi í heilbrigðisráðuneytinu og verður kynnt innan fárra daga.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum