Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2020 Utanríkisráðuneytið

30 milljónum króna varið til mannúðaraðstoðar í Afganistan

Íslensk stjórnvöld ætla að leggja jafnvirði þrjátíu milljóna króna til mannúðaraðstoðar í Afganistan. Þetta var tilkynnt í ávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, á tveggja daga framlagaráðstefnu vegna Afganistans sem lauk í dag. 

Í ávarpi utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, sem flutt var í gegnum fjarfundarbúnað, var lögð áhersla á að yfirstandandi viðræður afganskra stjórnvalda og talibana væru sögulegt tækifæri til þess að koma á friði í landinu. 

„Stuðningur sjálfbæra þróun, hagsæld og friðarumleitanir eru markmið sem Ísland aðhyllist heilshugar. Við höldum áfram að tala fyrir grundvallarþýðingu mannréttinda og jafnréttis kynjanna í þeim efnum, þar með talið virkri þátttöku kvenna í friðarviðræðum og uppbyggingu,“ segir í ávarpinu. 

Framlag Íslands rennur í svæðissjóð samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum, OCHA, í Afganistan, en sjóðurinn er skilvirk og traust stofnun til að bregðast við beiðnum um neyðar- eða mannúðaraðstoð. Ísland styður einnig verkefni á sviði valdeflingar kvenna í gegnum UN Women í Afganistan sem og við verkefni UNESCO á sviði menntamála og fjölmiðlafrelsis þar í landi.
 
Framlagaráðstefnunni í Genf lauk síðdegis en hún var skipulögð af stjórnvöldum í Afganistan, ríkisstjórn Finnlands og Sameinuðu þjóðunum. Slíkar ráðstefnur hafa jafnan farið fram fjórða hvert ár, síðast í Brussel 2016. Markmið ráðstefnunnar er að tryggja áframhaldandi stuðning við friðarumleitanir og uppbyggingu í Afganistan.
 
 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
3. Heilsa og vellíðan
5. Jafnrétti kynjanna
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum