Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. júlí 2015 Forsætisráðuneytið

Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Jafnréttissjóður
Jafnréttissjóður

Á vegum forsætisráðuneytisins er starfræktur sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður. Tilgangur hans er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði árið 2015. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 15 milljónir króna til ráðstöfunar til styrkúthlutana í ár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Hvorki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið né meistararitgerða.

Vakin er athygli á því að umsækjendum er gert að sækja rafrænt um á eyðublaðavef ráðuneytanna, minarsidur.stjr.is (sjá leiðbeiningar). Nánari upplýsingar má finna hér á vef ráðuneytisins. 

Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti í lok sunnudagsins 23. ágúst 2015 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2015.

Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum