Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. mars 2019 Matvælaráðuneytið

Ræða Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur á fundi um samkeppnismat OECD

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur samið við OECD um að framkvæma samkeppnismat á regluverki ferðaþjónustu og byggingarstarfsemi. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við Samkeppniseftirlitið auk annarra ráðuneyta og stofnana.

Af þessu tilefni var haldinn opinn fundur um samkeppnismatið, en tilgangur þess er að greina og meta gildandi regluverk með tilliti til þess hvort það hamli samkeppni eða feli í sér óþarflega íþyngjandi reglubyrði.

Meðal ræðumanna á fundinum var Ulrik Vestergaard Knudsen, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hélt opnunarræðu fundarins og sagði m.a. að kostir  samkeppnismats og ábati af betra regluverki væru miklir og þeir hefðu í öðrum löndum leitt til aukins hagvaxtar og betri lífsgæða fyrir almenning.

 

 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum