Hoppa yfir valmynd

Markmið og mælikvarðar

Með framlagningu fjármálaáætlunar fyrir árin 2026–2030 var framsetning á markmiðum og mælikvörðum málaflokka færð í tíma þannig að stefna málaflokka birtist samhliða ársskýrslum ráðherra í stað þess að vera birtar samhliða fjármálaáætlun. Með því að birta markmið og mælikvarða fjármálaáætlunar á sama tíma og árangursmat fer fram, skapast góð samfella milli mats á fyrri aðgerðum og mótunar nýrra markmiða ef við á. Fyrirkomulagið auðveldar einnig að meta hvort þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í séu líklegar til að ná tilætluðum árangri. Ef niðurstöður árangursmatsins benda til þess að grípa þurfi til nýrra eða breyttra aðgerða, er það gert við vinnslu fjárlagafrumvarpsins. Með þessu myndast virk tenging milli stefnumótunar og árangursmats, sem stuðlar að markvissari ákvarðanatöku og bættri nýtingu opinberra fjármuna.

Skýrslan inniheldur markmið, mælikvarða, raunstöðu og viðmið í hverjum málaflokki. Hægt er að velja málefnasvið og málaflokk í fellivalslista til þess að skoða þau markmið sem sett hafa verið á hverjum málaflokki. Jafnframt má sjá stutta lýsingu á hverjum málaflokki og útgjaldaramma málaflokka efst, þ.e. fjárheimildir eins og þær birtast í fjárlögum 2025 og fjármálaáætlun 2026-2030. Nánari lýsing á mælikvarða eða frekari skýringar birtast, eftir því sem við á, þegar músin er sett yfir gildi við mælikvarðann.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta