Hoppa yfir valmynd

Um sendiskrifstofu

Sendiráðið þjónar Frakklandi og sex öðrum ríkjum, þ.e. Andorra, Ítalíu, Líbanon, Mónakó, Portúgal og Spáni. Sendiráðið er jafnframt fastanefnd Íslands gagnvart Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).

Hlutverk sendiráðsins er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjunum og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningarmála. Sendiráð Íslands í París var opnað þann 10. janúar árið 1946.

Sendiráð Íslands í París

Heimilisfang

52, avenue Victor Hugo
75116 Paris

Sími: +33 (0)1 44 17 32 85

Netfang 

paris[hjá]utn.is

Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:30 - 16:30

Sendiráð Íslands í ParísFacebook hlekkurSendiráð Íslands í ParísFacebook hlekkur 2Sendiráð Íslands í ParísTwitte hlekkur

Sendiherra

Unnur Orradóttir Ramette

Unnur Orradóttir Ramette tók við sem sendiherra í París í júlí 2020. Þar áður var hún sendiherra í Kampala, Úganda (frá 1. ágúst 2018), skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins (frá 1. maí 2016) og sendiráðunautur á sömu skrifstofu frá 1. ágúst 2009. Unnur hóf störf hjá utanríkisþjónustunni í júlí 1997 og gegndi stöðu viðskiptafulltrúa hjá sendiráði Íslands í París í 12 ár.

Unnur útskrifaðist með mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum (DESCAF) hjá Ecole Supérieure de Commerce de Lille í Frakklandi árið 1993.

Unnur er gift Patrick Ramette og eiga þau tvö börn.

Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands í París

Hér að neðan má finna nánari upplýsingar um ræðisskrifstofurnar í umdæmislöndunum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum