Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Farsæl skólaganga allra barna – dagskrá ráðstefnu og breytt staðsetning

Mennta- og barnamálaráðuneytið minnir á ráðstefnuna Farsæl skólaganga allra barna: Hvernig byggjum við upp heildstæða skólaþjónustu til framtíðar? mánudaginn 14. nóvember kl. 9:00–15:00. Ráðstefnan hefur verið færð í Gullteig á Grand Hótel Reykjavík vegna mikillar aðsóknar.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti nýlega áform um ný heildarlög um skólaþjónustu og í þeirri vinnu gegnir samráð við hlutaðeigandi lykilhlutverki til að koma sem best til móts við þarfir skólasamfélagsins og tengdra þjónustukerfa.

Á ráðstefnunni verða erindi frá þjónustuveitendum og þjónustuþegum ásamt umræðum um þá þætti sem hafa þarf í huga þegar við mótum skólaþjónustu framtíðar.

Aðgangur er ókeypis og verður ráðstefnunni streymt á vef Stjórnarráðsins. Upptaka af streymi verður aðgengileg að ráðstefnu lokinni. 

 

Uppfært 10.11.22 kl. 13:09 & 17:17

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum