Mælaborð árangursupplýsinga birt samhliða ársskýrslum ráðherra
Við framlagningu fjármálaáætlunar fyrir árin 2026-2030 var birting markmiða og mælikvarða málaflokka færð í tíma að útgáfu ársskýrslna ráðherra í stað þess að birtast á sama tíma og fjármálaáætlun að vori. Með þessu myndast virk tenging milli stefnumótunar og árangursmats, sem stuðlar að markvissari ákvarðanatöku og bættri nýtingu opinberra fjármuna.
Markmiðin og mælikvarðarnir eru sýndir á aðgengilegu mælaborði, samhliða ársskýrslum ráðherra. Með því að birta markmið og mælikvarða fjármálaáætlunar á sama tíma og árangursmat fer fram, skapast góð samfella milli mats á fyrri aðgerðum og mótunar nýrra markmiða ef við á. Fyrirkomulagið auðveldar einnig að meta hvort þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í séu líklegar til að ná tilætluðum árangri. Ef niðurstöður árangursmatsins benda til þess að grípa þurfi til nýrra eða breyttra aðgerða, er það gert við vinnslu fjárlagafrumvarps.
Ársskýrslur ráðherra birtar á einu vefsvæði
Ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2024 hafa verið birtar í samræmi við lög um opinber fjármál. Í skýrslunum er gerð grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og þau borin saman við fjárheimildir fjárlaga. Einnig er í skýrslunum fjallað um fjárveitingar til einstakra ríkisaðila og verkefna og lagt mat á ávinning af þeim með tilliti til aðgerða og markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun.
Til að bæta aðgengi notenda eru ársskýrslur allra ráðherra fyrir árið 2024 birtar á einu vefsvæði. Skýrslunum er skipt upp í tvo meginkafla, markmið og árangur og greiningu á útgjöldum og geta notendur smellt á kaflana og valið þar ráðuneyti eða málaflokka til að skoða.
Í kaflanum um markmið og árangur er hægt að skoða markmið og mælikvarða sem sett voru fyrir árið 2024 og birtust í fjármálaáætlun 2024-2028. Jafnframt má sjá aðgerðir sem tengjast markmiðunum og settar voru fram í fjárlagafrumvarpi ársins 2024. Í kaflanum um greiningu á útgjöldum má sjá greinargerð með skýrslu yfir frávik ásamt yfirliti yfir styrki.