Stórfelld einföldun regluverks: úr ellefu eftirlitsaðilum í tvo
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson og atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, kynntu í dag á sameiginlegum fundi ráðuneytanna áform um að gera leyfisveitingar og eftirlit með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum einfaldara og skilvirkara auk þess að bæta þjónustu.
Eftirlitsaðilum fækkar
Samkvæmt fyrirhuguðum breytingum verður ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum færð frá heilbrigðiseftirliti til Umhverfis- og orkustofnunar og ábyrgð á eftirliti með matvælum færist frá heilbrigðiseftirliti til Matvælastofnunar. Þannig verða eftirlitsaðilar tveir í stað ellefu.
„Þetta er stærsta breyting á eftirlitsumhverfi fyrirtækja sem ráðist hefur verið í svo áratugum skiptir” segir Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Breytingin er jafnframt í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks og samræmingu eftirlits og stjórnsýslu í þágu vaxtar og verðmætasköpunar um allt land.“
Störf haldist í heimabyggð
Ráðherrarnir lögðu áherslu á að markmið breytinganna væri ekki fækkun eða tilfærsla opinberra starfa milli landshluta. Þvert á móti verði lagt upp með að standa vörð um störfin á landsbyggðinni og leitast við að tryggja að störfin haldist í heimabyggð. Eftirlit á landsvísu verður samræmt og þjónusta þannig bætt til muna. Útgáfa starfsleyfa verður miðlæg og á vegum fyrrgreindra stofnana.
Fram kom fram í máli ráðherranna að meginhvatinn við fyrirhugaðar breytingar sé að gera ferli vegna eftirlits og leyfisveitinga einfaldara og skilvirkara og bæta þjónustu. Lengi hefur verið bent á að núverandi fyrirkomulag sé flókið að uppbyggingu, ábyrgðarsvið sé á tíðum óljóst, oft sé ósamræmi í aðferðarfræði og erfitt fyrir þjónustuþega að nálgast upplýsingar. Á undanförnum árum hafa fjöldi greininga og skýrslna varpað ljósi á að breytinga sé þörf.
„Við erum að einfalda regluverkið og gera eftirlit með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum traustara og skilvirkara með hagsmuni atvinnulífsins og neytenda að leiðarljósi” sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Viðtækt samráð
Áform ráðherranna byggja meðal annars á vinnu stýrihóps sem skipaður var fulltrúum ráðuneytanna, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, Samtaka atvinnulífsins og innviðaráðuneytisins. Þá sátu áheyrnarfulltrúar frá Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun einnig fundi hópsins og tóku virkan þátt í rýni.
Haldnir voru samráðsfundir með sveitarfélögum, heilbrigðiseftirlitssvæðum og fyrirtækjum þar sem málefnalegar umræður áttu sér stað um helstu áskoranir. Einnig bárust margar gagnlegar ábendingar, m.a. í gegnum samráðsgátt stjórnvalda, sem unnið var úr við gerð skýrslu stýrihópsins.
Brýn þörf á breytingum
Málið á sér langan aðdraganda og framkvæmd eftirlits með matvælum hefur verið til skoðunar í meira en áratug. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur í formlegu áminningarbréfi bent á að fyrirkomulag matvælaeftirlits á Íslandi standist ekki kröfur EES-samningsins. Helstu áhyggjuefni varða skort á samræmi, skýrri ábyrgð og yfirstjórn eftirlits. Áformaðar breytingar eru skýrt svar við fyrrgreindum ábendingum. Fyrirhuguð útfærsla er raunhæf, uppfyllir lagakröfur og markmið um skilvirkt, óhlutdrægt og samræmt opinbert eftirlit.
Áformaskjal verður lagt fram í samráðsgátt nú í vikunni og drög að frumvarpi í október nk. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun síðan leggja fram frumvarp á Alþingi í nóvember nk.
Skýrslu stýrihópsins má nálgast hér.
Sameinaðir innviðir - þarfa- og kröfulýsing unnin af KPMG
Lögfræðileg álitsgerð Trausta Fannars Valssonar dósents við Háskóla Íslands.