Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Trúnaðarbréf afhent víða um heim

Kristín Árnadóttir hitti einn af höfðingjum Maóría í ferð sinni til Nýja-Sjálands - myndUtanríkisráðuneytið
Sendiherrar í íslensku utanríkisþjónustunni hafa undanfarinn mánuð afhent trúnaðarbréf sín í nokkrum ríkjum hér og þar á jarðarkringlunni.

Unnur Orradóttir Ramette afhenti Yoweri Museveni, forseta Úganda, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í landinu síðastliðinn föstudag. Ísland starfrækir sendiráð í höfuðborginni Kampala en auk Úganda eru umdæmisríki Djíboutí, Eþíópía, Kenía, Namibía og Malaví.

Daginn áður, fimmtudaginn 21. febrúar, afhenti Þórir Ibsen Miloši Zeman, forseta Tékklands, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands gagnvart Tékklandi með aðsetur í Reykjavík. Þórir og Zeman forseti ræddu á fundi sínum sameiginlegt viðskiptaþing, formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu, og tækifæri til að efla enn frekar samskipti ríkjanna með aðkomu Uppbyggingarsjóðs EES, en Tékkland er eitt af samstarfsríkjum sjóðsins. Tengsl Íslands og Tékklands eiga sér langa sögu. Viðskipti þeirra á milli hafa alla jafnan verið nokkur og er verðgildi þeirra í dag um 14 milljarðar.

Kristján Andri Stefánsson afhenti þann 14. febrúar Abdelkader Messahel, utanríkisráðherra Alsírs, afrit trúnaðarbréfs síns sem sendiherra Íslands í Alsír með aðsetur í París.

13. febrúar afhenti Pétur Ásgeirsson Carlos Alvarado Quesada, forseta Kosta Ríka, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands þar í landi með aðsetur í Kanada.

Sama dag afhenti Þórir Ibsen Andrej Kiska forseta Slóvakíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Slóvakíu, með aðsetur í Reykjavík. Við það tilefni ræddu þeir samskipti ríkjanna sem hafa farið vaxandi á undanförnum árum en heildarverðmæti viðskipta á milli landanna eru 7,5 milljarðar króna. Nokkur íslensk fyrirtæki hafa verið með starfsemi eða í samstarfsverkefnum í Slóvakíu og er Marel þeirra stærst, en fyrirtækið starfrækir stóra verksmiðju í Nitra þar sem starfa um 300 manns. Þá hafa íslensk jarðhitafyrirtæki komið að verkefnum í Slóvakíu, en þar er umtalsverður lághiti.

Guðmundur Árni Stefánsson afhenti trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Srí Lanka þann 1.febrúar síðastliðinn við hátíðlega athöfn i forsetahöllinni i höfuðborginni, Colombo.

31. janúar afhenti Kristín A. Árnadóttir Dame Patsy Reddy, landsstjóra Nýja-Sjálands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Nýja-Sjálandi, með aðsetur í Reykjavík. Á fundi með landsstjóranum, Grant Robertson, fjármálaráðherra Nýja-Sjálands, og ýmsum sérfræðingum var rætt um samskipti ríkjanna  og sameiginleg hagsmunamál. Góð samvinna er á sviði jarðhita, sjávarútvegs og ferðamála og horfa Íslendingar gjarnan til þeirra leiða sem þróaðar hafa verið á Nýja-Sjálandi. Má nefna að þar hefur náðst mikill árangur í verndun náttúruauðlinda á sama tíma og ferðamannastraumur eykst stöðugt. Með Kristínu í för var ræðismaður Íslands á Nýja-Sjálandi, Geiri Pétursson skipstjóri.
  • Unnur Orradóttir Ramette afhendir Museveni Úgandaforseta trúnaðarbréf - mynd
  • Þórir Ibsen afhendir Andrej Kiska Slóvakíuforseta trúnaðarbréf - mynd
  • Þórir Ibsen afhendir Miloši Zeman, forseta Tékklands, trúnaðarbréf  - mynd
  • Pétur Ásgeirsson sendiherra ásamt Carlosi Alvarado Quesada, forseta Kosta Ríka - mynd
  • Kristján Andri Stefánsson sendiherra (t.h.) og Abdelkader Messahel, utanríkisráðherra Alsírs - mynd
  • Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra afhendir Maithripala Sirisena, forseta Srí Lanka, trúnaðarbréfið.  - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum