Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2004 Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla nefndar um uppbyggingu Landspítala - háskólasjúkrahúss

Þann 30. október 2002 skipaði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra nefnd til að annast skipulagningu húsnæðis fyrir Landspítala-háskólasjúkrahús á Hringbrautarsvæðinu á grundvelli nefndarálits starfsnefndar um „Framtíðarskipulag og uppbyggingu Landspítala-háskólasjúkrahúss” sem skilað var til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis í janúar 2002.

Verkefni nefndarinnar eru m.a. þau, að ljúka frumathugun og greinargerð um frumathugun á grundvelli ofangreinds nefndarálits, vinna að nauðsynlegum samningum um lóðir og nýtingu þeirra og sinna deiliskipulagsvinnu með Reykjavíkurborg, gera áætlun um forgangsröðun framkvæmda, verkefna og bygginga, vinna að tíma- og fjárhagsáætlunum fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir sem taki til heildarsvæðisins og skoða þær fjármögnunarleiðir sem til greina koma við uppbyggingu svæðisins, m.a. samstarf við einkaaðila.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum