Úrskurðir og álit
-
11. maí 2020 /897/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020
Í málinu kærði blaðamaður synjun Barnaverndarstofu á beiðni hans um gögn varðandi tiltekið fósturheimili. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með Barnaverndarstofu að óheimilt væri að veita upplýsingar um hvort athugasemdir vegna starfsemi fósturheimila hafi borist án þess að fram færi atviksbundið mat á efni slíkra gagna. Fallist var á að óheimilt væri að veita kæranda aðgang að hluta gagna Barnaverndarstofu varðandi heimilið með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Barnaverndarstofu var þó gert að veita kæranda aðgang að hluta bréfs barnaverndarnefndar Kópavogs vegna fósturheimilisins og svarbréfi Barnaverndarstofu í heild sinni.
-
11. maí 2020 /896/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020
Kærð var afgreiðsla Herólfs ohf. á beiðni kæranda um aðgang að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2020 en Herjólfur hafði vísað til þess í svari til kæranda að upplýsingarnar væri að finna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Úrskurðarnefndin taldi 2. málsl. 1. mgr. 18. gr. upplýsingalaga ekki verða túlkaðan á þann veg að ákvæðið leggi skyldu á stjórnvöld til að afhenda gögn á því formi sem aðili óski eftir þegar þau séu þegar aðgengileg almenningi. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.
-
11. maí 2020 /895/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að vinnusálfræðilegri greinargerð sem unnin var í tilefni af kvörtunum kæranda um einelti á vinnustað. Úrskurðarnefndin mat rétt kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Talið var að hagsmunir kæranda af því að geta kynnt sér efni skýrslunnar vægju þyngra en hagsmunir þeirra sem tjáðu sig við gerð hennar af leynd. Hins vegar bæri að afmá úr skýrslunni frásagnir um einkamálefni annarra en kæranda, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.
-
11. maí 2020 /894/2020. Úrskurður frá 30. apríl 2020
Í málinu óskaði blaðamaður eftir því að úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvæði upp úrskurð varðandi rétt hans til aðgangs að fundargerðum Ríkisútvarpsins ohf. á tímabilinu 1. janúar 2018 til 7. ágúst 2019 á grundvelli 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga. Í rökstuðningi Ríkisútvarpsins vegna kærunnar kom fram að það væri afstaða félagsins að afhenda kæranda fundargerðirnar en áður bæri þó að afmá tilteknar upplýsingar úr þeim. Úrskurðarnefndin taldi fundargerðirnar vera að mestu leyti vinnugögn og því væri félaginu heimilt að undanþiggja upplýsingar úr þeim á þeim grundvelli, sbr. 5. tölul. 6. gr., sbr. 8. gr. upplýsingalaga. Þó væri félaginu skylt að afmá tilteknar upplýsingar úr fundargerðunum með vísan til 9. gr. upplýsingalaga.
-
08. maí 2020 /Mál nr. 2/2020. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Óvirkni samnings. Uppsögn samnings. Mistök við tilboðsgerð. Tilboðsskrá. Ógilt tilboð. Jafnræði bjóðenda.
-
08. maí 2020 /Úrskurður í máli nr. SRN19100073
Vegagerðin: Staðfest ákvörðun um að synja umsókn um nýjan héraðsveg.
-
07. maí 2020 /Nr. 172/2020 úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kæranda og barna hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Grikklands eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barna hans til meðferðar á ný.
-
07. maí 2020 /Staðfest ákvörðun Fiskistofu um að afturkalla leyfi til vigtunar sjávarafla
Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Fiskistofu um að afturkalla leyfi til vigtunar sjávarafla skv. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar vegna þess við eftirlit með endurvigtun á sjávarafla komí ljós að innsigli vogarinnar var rofið og voginn því ekki löggilt.
-
07. maí 2020 /Nr. 167/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda og barns hennar um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Ítalíu er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barns hennar til efnismeðferðar.
-
07. maí 2020 /Nr. 165/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er felld úr gildi.
-
07. maí 2020 /Nr. 169/2020 Úrskurður
Fallist er á beiðni kærenda um endurupptöku á málum þeirra. Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar.
-
07. maí 2020 /Nr. 170/2020 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda þau til Grikklands eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda til meðferðar á ný.
-
07. maí 2020 /Nr. 171/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hana til Grikklands er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til meðferðar á ný.
-
-
07. maí 2020 /Mál nr. 120/2020 - Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta þar sem kærandi tilkynnti ekki um skerta vinnufærni.
-
07. maí 2020 /Mál nr. 69/2020 - Úrskurður
Biðtími. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði. Starfi sagt upp án gildra ástæðna.
-
07. maí 2020 /Mál nr. 51/2020 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hafna umsókn kæranda. Tekjur skerða atvinnuleysisbætur að fullu
-
07. maí 2020 /Mál nr. 49/2020 - Úrskurður
Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að hafna umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Annmarkar á málsmeðferð.
-
07. maí 2020 /Mál nr. 32/2020 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á bið. Kærandi hafði ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils.
-
-
07. maí 2020 /Nr. 123/2020 Úrskurður
Ákvörðunarorð Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann aftur til Tékklands eru staðfest.
-
07. maí 2020 /Nr. 124/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Tékklands er staðfest.
-
07. maí 2020 /Nr. 168/2019 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Finnlands er staðfest.
-
07. maí 2020 /Nr. 166/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.
-
06. maí 2020 /Mál nr. 36/2020 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að rannsókn og meðferð hafi verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði.
-
06. maí 2020 /Mál nr. 11/2020 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Taldi úrskurðarnefndin að sú meðferð sem kærandi hlaut hafi verið hagað eins vel og unnt hafi verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði.
-
06. maí 2020 /Mál nr. 521/2019 - Úrskurður
Tannlækningar. Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja beiðni um framlengingu samþykktar á greiðsluþátttöku í kostnaði vegna tannréttinga. Málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.
-
06. maí 2020 /Mál nr. 24/2020 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
06. maí 2020 /Mál nr. 561/2019 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Ekki talið að bótaskylda væri fyrir hendi á grundvelli 2. gr. laga um sjúklingatryggingu vegna tafa á meðferð.
-
06. maí 2020 /Mál nr. 527/2019
Endurupptaka. Synjað beiðni kæranda um endurupptöku máls nr. 527/2019 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála.
-
06. maí 2020 /Mál nr. 511/2019
Slysatrygging. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn kæranda um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga. Skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga um slysatryggingar almannatrygginga um skyndilegan utanaðkomandi atburð ekki uppfyllt.
-
05. maí 2020 /Mál nr.19 /2020 - Úrskurður
Felldur úr gildi úrskurður barnaverndarnefndar um lokun máls vegna dóttur kæranda
-
04. maí 2020 /893/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020
Kærð var afgreiðsla Vegagerðarinnar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum rafrænnar ferilvöktunar í tengslum við tjón sem varð á bifreið kæranda en kærandi taldi snjómoksturstæki á vegum Vegagerðarinnar hafa valdið tjóninu. Úrskurðarnefndin mat rétt kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga og taldi hagsmuni hans af því að geta kynnt sér gögnin ríkari en óljósa hagsmuni annarra sem gögnin gætu varðað.
-
04. maí 2020 /892/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020
Vinnueftirlitið hafði synjað beiðni kæranda um aðgang að gögnum með vísan til þagnarskylduákvæðis 2. mgr. 83. gr. laga nr. 46/1980 og 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi fyrrnefnda ákvæðið ekki kveða á um sérstaka þagnarskyldu heldur almenna og yrði því að meta rétt kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga. Að mati úrskurðarnefndarinnar skorti að tekin hefði verið rökstudd afstaða til gagnabeiðni kæranda á grundvelli upplýsingalaga og var málinu því vísað aftur til Vinnueftirlitsins til nýrrar meðferðar.
-
04. maí 2020 /891/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020
Deilt var um afgreiðslu Hveragerðisbæjar á beiðni kæranda um aðgang að gögnum er varða dóttur kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda eiga rétt til aðgangs að hluta gagnanna á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga en til annarra gagna á grundvelli stjórnsýslulaga. Fallist var á rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi sveitarfélagsins við tiltekinn starfsmann að undanskildum upplýsingum um stéttarfélagsaðild hans. Þá taldi nefndin kæranda eiga rétt til aðgangs að gögnum um afgreiðslu máls vegna vantraustsyfirlýsingar á félagsráðgjafa sveitarfélagsins.
-
04. maí 2020 /890/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020
Kærð var afgreiðsla Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni blaðamanns um aðgang að samningsskilmálum samninga félagsins við sjálfstæða framleiðendur um kaup á dagskrárefni á árunum 2015 og 2018. Ríkisútvarpið hélt því fram að samningarnir hefðu ekki að geyma staðlaða samningsskilmála en auk þess gætu samningarnir geymt upplýsingar sem felldar yrðu undir 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi Ríkisútvarpinu hafa borið að taka afstöðu til þess hvort kærandi ætti rétt á afritum af samningunum á grundvelli upplýsingalaga. Þar sem slíkt mat á beiðni kæranda hafði ekki farið fram var beiðninni vísað aftur til afgreiðslu félagsins.
-
04. maí 2020 /889/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020
Deilt var um afgreiðslu Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis á beiðni kæranda um aðgang að gögnum. Úrskurðarnefndin taldi upplýsingar um það hvaða fasteignareigendum heilbrigðiseftirlitið hefði sent bréf vegna frágangs fráveitna ekki verða felldar undir undantekningarákvæði upplýsingalaga og féllst á rétt kæranda til aðgangs að bréfum eftirlitsins án útstrikana. Kærandi hafði einnig óskað eftir svarbréfum fasteignareigenda við bréfum eftirlitsins og öllum samskiptum þess við umhverfissvið Mosfellsbæjar en heilbrigðiseftirlitið sagði þau gögn ekki vera fyrirliggjandi. Þar sem úrskurðarnefndin hafði ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa var kærunni vísað frá hvað varðar afgreiðslu heilbrigðiseftirlitsins á þeim hluta beiðninnar.
-
04. maí 2020 /888/2020. Úrskurður frá 22. apríl 2020
Í málinu var fjallað um rétt Samtaka iðnaðarins til upplýsinga sem Reykjavíkurborg hafði afmáð úr fylgiskjali með þjónustusamningi sveitarfélagsins við Orkuveitu Reykjavíkur frá árinu 2010. Reykjavíkurborg hafði afmáð upplýsingar um verkætti og annan kostnað vegna samningsins með vísan til 4. tölul. 10. upplýsingalaga þar sem um væri að ræða viðkvæmar upplýsingar um rekstrar- og samkeppnisstöðu Orku náttúrunnar. Úrskurðarnefndin taldi, að undangengnu heildarmati á samkeppnishagsmunum OR og ON, að ekki væri réttlætanlegt að þeir gengju framar hagsmunum almennings af aðgangi að upplýsingunum. Var því fallist á að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingunum á grundvelli 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga.
-
04. maí 2020 /2/2018 Úrskurður A gegn Háskóla Íslands
Ár 2018, 26. október, lauk áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, þau Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður og Eva Halldórsdóttir lögmaður málinu nr. 2/2018 A gegn Háskóla Íslands með svohljóðandi Ú)...
-
30. apríl 2020 /Nr. 160/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að vísa honum frá Íslandi er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 562/2019 - Úrskurður
Sérstakur húsnæðisstuðningur. Felld úr gildi synjun Kópavogsbæjar á umsókn kæranda um sérstakan húsnæðisstuðning. Synjun ekki í samræmi við reglur sveitarfélagsins.
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 498/2019 - Úrskurður
Málefni fatlaðra. Málshraði. Afgreiðsla Garðabæjar í máli kæranda var ekki í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 497/2019 - Úrskurður
Málefni fatlaðra. Málshraði. Afgreiðsla Garðabæjar í máli kæranda var ekki í samræmi við málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
-
30. apríl 2020 /nr. 161/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað.
-
-
30. apríl 2020 /Nr 149/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða er felld úr gildi að hluta. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga.
-
30. apríl 2020 /Nr. 162/2020 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar eru staðfestar. Lagt er fyrir kæranda og börn hennar að hverfa af landi brott. Kæranda og börnum hennar er veittur 7 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.
-
-
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 27/2020 - Úrskurður
Tímabundinn leigusamningur: Lok leigutíma. Leigugreiðslur.
-
30. apríl 2020 /Nr. 164/2020 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum eru staðfestar.
-
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 24/2020 - Álit
Kostnaðarþátttaka: Viðgerðir á gluggum. Persónulegir munir í sameign.
-
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 22/2020 - Úrskurður
Tímabundinn leigusamningur: Leigubætur. Hiti og rafmagn.
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 50/2020 - Úrskurður
Fjárhagsaðstoð. Felld úr gildi synjun Hafnarfjarðarbæjar á umsókn kæranda um afturvirka fjárhagsaðstoð.
-
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 47/2020 - Úrskurður
Íbúðalánasjóður. Staðfest synjun Íbúðalánasjóðs á umsókn um afskrift á skuld. Þeim þætti kærunnar er laut að greiðslu eftirstöðva veðkrafna í kjölfar nauðungarsölu á fasteign var vísað frá.
-
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 16/2020 - Úrskurður
Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Íbúðalánasjóðs um greiðslu húsnæðisbóta frá umsóknarmánuði. Kæru vegna eldri ákvörðunar sjóðsins vísað frá þar sem kærufrestur var liðinn.
-
30. apríl 2020 /Mál nr. 15/2020 - Úrskurður
Íbúðalánasjóður. Staðfest synjun Íbúðalánasjóðs á umsókn um afskrift á skuld.
-
29. apríl 2020 /Ákvörðun Matvælastofnunar um synjun á umsókn um svæðisbundinn stuðning í sauðfjárrækt
Lykilorð: Stjórnsýslukæra, synjun umsóknar, Matvælastofnun, svæðisbundinn stuðningur, sauðfjárrækt. Stjórnsýslukæra, synjun umsóknar, Matvælastofnun, svæðisbundinn stuðningur, sauðfjárrækt.
-
29. apríl 2020 /Ákvörðun Matvælastofnunar um að synja um veitingu leyfis fyrir vinnslu á lambshornum
Með bréfi, dags. 24. júní 2019, bar [A] lögmaður fram kæru f.h. [B ehf.] (hér eftir kærandi), vegna ákvörðunar Matvælastofnunar frá 19. júní 2019 um að synja um veitingu leyfis fyrir vinnslu á lambshornum sem eru í eigu félagsins og fyrirhugað er að nýta í hundafóður. Lykilorð: Stjórnsýslukæra, endurupptaka, aukaafurðir dýra, Matvælastofnun, synjun leyfis.
-
29. apríl 2020 /Mál nr. 530/2019 - Úrskurður
Umönnunarmat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að ákvarða umönnun sonar kæranda samkvæmt 2. flokk, 43% greiðslur.
-
29. apríl 2020 /Mál nr. 556/2019 - Úrskurður
Örorkumat Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um breytingu á gildandi örorkumati og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Úrskurðarnefndin taldi rétt að stofnunin mæti örorku kæranda samkvæmt örorkustaðli að undangenginni læknisskoðun vegna upplýsinga um versnandi heilsufar.
-
29. apríl 2020 /Mál nr. 496/2019 - Úrskurður
Tannlækningar. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja um greiðsluþátttöku í tannlækningum.
-
29. apríl 2020 /Mál nr. 494/2019 - Úrskurður
Sjúkraþjálfun. Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um greiðsluþátttöku í sjúkraþjálfun.
-
29. apríl 2020 /Mál nr. 543/2019 - Úrskurður
Örorkumat Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um breytingu á gildandi örorkumati og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Að mati úrskurðarnefndar var misræmi í gögnum málsins varðandi mat á andlegri færni kæranda.
-
29. apríl 2020 /Mál nr. 23/2020 - Úrskurður
Endurupptökubeiðni Endurupptökubeiðni synjað. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að ekki yrði ráðið af gögnum málsins að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 37/1993 né að kærandi eigi rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar.
-
29. apríl 2020 /Mál nr. 14/2020 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
28. apríl 2020 /Stjórnvaldssekt -Heimagisting - Óskráð gististarfsemi.
Úrskurður kveðinn upp 2. apríl 2020 Heimagisting. Stjórnvaldssekt. Óskráð gististarfsemi. Með tölvupósti dags. 12. febrúar 2019 barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra frá [A] (hér eftir kærandi). Kærð var ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir sýslumaður) frá 31. janúar 2019 um að leggja 1.500.000 kr. stjórnvaldssekt á kæranda vegna óskráðrar gististarfsemi að [B].
-
28. apríl 2020 /Heimagisting - Stjórnvaldssekt - Óskráð gististarfsemi
Heimagisting. Stjórnvaldssekt. Óskráð gististarfsemi. Stjórnsýslukæra Með erindi dags. 19. júní 2019 bar [A,] lögmaður, fram kæru fyrir hönd [B] (hér eftir kærandi), vegna ákvörðunar Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir sýslumaður) frá 23. maí 2019 um að leggja stjórnvaldssekt á kæranda að samtals 1.100.000 kr. vegna óskráðrar gististarfsemi að [C]. Sektarheimildina er að finna í 22. gr. a. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007.
-
28. apríl 2020 /Álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli nr. SRN20010110
Stjórnsýsla Reykjanesbæjar
-
24. apríl 2020 /Mál nr. 45/2020 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja umsókn kæranda um fæðingarstyrk. Skilyrði um lögheimili á Íslandi ekki uppfyllt.
-
24. apríl 2020 /Mál nr. 34/2020 - Úrskurður
Greiðsluáætlun. Staðfestur útreikningur Fæðingarorlofssjóðs á mánaðarlegum greiðslum til kæranda. Ekki heimilt að líta til orlofslauna við útreikning á meðaltali heildarlauna.
-
24. apríl 2020 /Nr. 159/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa þeim frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
-
22. apríl 2020 /Úrskurður vegna brota á reglum um skráða gististarfsemi
Heimagisting. Stjórnvaldssekt. Gististarfsemi.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 34/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 27. desember 2019 kærði Smith & Norland hf. útboð varnaraðila Reykjavíkurborgar nr. 14356 auðkennt „Rammasamningur um stýribúnað umferðarljósa“. Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að fella niður hið kærða útboð verði ógilt, „svo og að lagt verði fyrir varnaraðila að halda áfram því ferli útboðsins er fólst í tillögu hans til innkauparáðs borgarinnar 27. nóvember 2019.“ Kærandi krefst þess einnig að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila auk þess sem hann krefst málskostnaðar úr hendi varnaraðila.
-
22. apríl 2020 /Nr. 151/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa kæranda frá Íslandi og ákveða honum fimm ára endurkomubann til landsins er staðfest.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 354/2019 - Úrskurður
Ofgreiddar bætur Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 341/2019 - Úrskurður
Ellilífeyrir Staðfest afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins á umsókn kæranda um ellilífeyri. Fallist á útreikning Tryggingastofnunar á búsetuhlutfalli kæranda. Fallist á það mat Tryggingastofnunar að „witwer-pension“ skuli skerða ellilífeyrisgreiðslur frá stofnuninni með sama hætti og greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 425/2019 - Úrskurður
Læknismeðferð erlendis. Tannlækningar. Staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands um endurgreiðslu á erlendum sjúkrakostnaði. Heilbrigðisþjónusta fór fram í búsetulandi kæranda.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 397/2018 - Endurupptekið
Örorkubætur Staðfestar voru ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og endurupptöku á örorkumati hans. Staðfest var einnig ákvörðun stofnunarinnar um stöðvun örorkulífeyrisgreiðslna og endurkröfu ofgreiddra bóta með 15% álagi. Kærandi var búsettur erlendis og tilkynnti Tryggingastofnun ekki um flutninginn. Þeim hluta kæru, sem varðar beiðni kæranda um gögn, var vísað frá úrskurðarnefndinni. Fjallað var um að úrskurðarnefnd velferðarmála fjallar einungis um tilteknar stjórnvaldsákvarðanir samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá voru nefndarmenn úrskurðarnefndarinnar ekki taldir vanhæfir til að úrskurða í málinu.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 477/2019 - Úrskurður
Rekstur bifreiða Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma greiðslu uppbótar vegna reksturs bifreiðar
-
22. apríl 2020 /Nr. 156/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Frakklands er felld úr gildi.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 29/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Kröfugerð. Bindandi samningur. Kominn var á bindandi samningur á milli varnaraðila samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þegar af þeirri ástæðu var hvorki unnt að ógilda val varnaraðila á tilboði né velja tilboð kæranda í hinu kærða útboði, en aðrar kröfur voru ekki gerðar. Kröfum kæranda var því hafnað.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 491/2019 - Úrskurður
Meðlag Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda. Þeim hluta kæru er varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að stöðva milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda er vísað frá nefndinni þar sem að meira en tvö ár liðu frá þeirri ákvörðun þar til kæra barst úrskurðarnefndinni, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 456/2019 - Úrskurður
Ofgreiddar bætur Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018 og útreikning á hækkun greiðslna vegna frestunar lífeyristöku.
-
22. apríl 2020 /Nr. 91/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa kæranda frá Íslandi og ákveða honum tveggja ára endurkomubann til landsins er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.
-
22. apríl 2020 /Nr. 100/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Belgíu er staðfest.
-
22. apríl 2020 /Mál nr. 440/2019 - Úrskurður
Uppbót/styrkur til bifreiðakaupa Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um uppbót/styrk til bifreiðakaupa. Skilyrði um að ökumaður sé heimilismaður kæranda, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 2. gr., 1. tölul. 2. mgr. 3. gr., og 1. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 ekki uppfyllt.
-
22. apríl 2020 /Nr. 117/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Grikklands er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.
-
22. apríl 2020 /Nr. 152/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hana til Ítalíu er felld úr gildi.
-
22. apríl 2020 /Nr. 154/2020 Úrskurður
Beiðni kærenda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Ítalíu er felld úr gildi.
-
22. apríl 2020 /Nr. 142/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um ótímabundið dvalarleyfi er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 13/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Stöðvunarkrafa samþykkt. Kröfu kæranda um stöðvun útboðs um kaup á einkennisfatnaði fyrir lögreglu um stundarsakir var samþykkt.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 27/2020 Úrskurður 21. apríl 2020
Beiðni um millinafnið Brettingz er hafnað.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 26/2020 Úrskurður 21. apríl 2020
Beiðni um eiginnafnið Aldan (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 25/2020 úrskurður 21. apríl 2020
Fallist er á föðurkenninguna Þorsteinsson.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 24/2020 Úrskurður 21. apríl 2020
Beiðni um millinafnið Vattarnes er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 22/2020 Úrskurður 21. apríl 2020
Beiðni um eiginnafnið Dylan (kk.) er hafnað.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 33/2019. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 18. desember 2019 kærði Íslensk orkumiðlun ehf. útboð Veitna ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur – Vatns- og fráveitu sf. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „VEIK-2019-11 Raforkukaup fyrir Veitur“. Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda vegna raforkukaupa í flokki C í hinu kærða útboði, að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila að ganga að tilboði Orku náttúrunnar ehf. vegna raforkukaupa í flokki C og að varnaraðilum verði gert að taka tilboði kæranda í sama flokki. Kærandi krefst þess til vara að kærunefnd útboðsmála lýsi útboðið ógilt. Þá er þess krafist í öllum tilvikum að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er krafist málskostnaðar úr hendi varnaraðila.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 113/2020 - Úrskurður
Felld úr gildi synjun Fæðingarorlofssjóðs á umsókn kæranda um lengingu á greiðslum í fæðingarorlofi vegna alvarlegra veikinda móður í tengslum við fæðingu. Ekki ljóst hvort kærandi hafi verið ófær um að annast barn sitt.
-
21. apríl 2020 /Mál nr. 1/2020 - Úrskurður
Staðfest synjun Fæðingarorlofssjóðs á umsókn kæranda um lengingu á greiðslum í fæðingarorlofi vegna alvarlegra veikinda móður í tengslum við fæðingu. Veikindi ekki rakin til fæðingarinnar sjálfrar.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
20. apríl 2020 /Mál nr. 6/2020 - Álit
Eignaskiptayfirlýsing: Eignatilfærslur. Uppsetning rafmagns- og orkumæla í bílageymslu.
-
-
-
-
20. apríl 2020 /Mál nr. 108/2019 - Úrskurður
Trygging: Leiga. Ástand hins leigða við lok leigutíma.
-
17. apríl 2020 /Ákvörðun Fiskistofu um að veita kæranda skriflega áminningu fyrir brottkast
Grásleppuveiðar. Brottkast. Sönnun. Skrifleg áminning. Viðurlög.
-
-
16. apríl 2020 /Nr. 147/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
16. apríl 2020 /Mál nr. 540/2019 - Úrskurður
Félagslegt leiguhúsnæði. Staðfest ákvörðun Reykjavíkurborgar um að úthluta húsnæði sem áfangahúsnæði
-
16. apríl 2020 /Mál nr. 22/2020 - Úrskurður
Félagslegt leiguhúsnæði. Felld úr gildi synjun Sveitarfélagsins Árborgar á umsókn um félagslegt leiguhúsnæði. Ekki lagt mat á undanþáguákvæði 5. gr. reglna um félagslegt leiguhúsnæði.
-
16. apríl 2020 /Stjórnvaldssekt - Heimagisting
Heimagisting. Stjórnvaldssekt. Óskráð gististarfsemi. Með bréfi dags. 15. nóvember 2018 bar [A], lögmaður, fram kæru fyrir hönd [B] (hér eftir kærandi), vegna ákvörðunar Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir sýslumaður) frá 26. október 2018 um að leggja 300.000 kr. stjórnvaldssekt á kæranda vegna óskráðrar gististarfsemi að [C].
-
16. apríl 2020 /Ákvörðun Fiskistofu kærð vegna synjunar á flutningi aflamarks umfram 50%
Synjun - aflamark
-
16. apríl 2020 /Nr. 148/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að vísa honum frá Íslandi er staðfest.
-
15. apríl 2020 /Ákvörðun Fiskistofu um að hafna beiðni um endurupptöku ákvarðana
Endurupptökubeiðni. Svipting leyfis til hrognkelsaveiða. Álagning sérstaks gjalds vegna ólögmæts sjávarafla. Lagaskilyrði endurupptöku. Málsmeðferð.
-
15. apríl 2020 /887/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020
Kærð var afgreiðsla Sýslumannsins á Vestfjörðum á beiðni um aðgang að gögnum sem sýndu fram á hver hefði fengið greiddar líftryggingabætur eftir mann sem lést árið 1900. Úrskurðarnefndin féllst ekki á það að embættinu væri ómögulegt að afgreiða beiðnina vegna aðstæðna á skjalasafni embættisins. Var málinu vísað til Sýslumannsins á Vestfjörðum til nýrrar og lögmætrar meðferðar.
-
15. apríl 2020 /886/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020
Í málinu hafði embætti ríkislögmanns synjað beiðni blaðamanns um aðgang að stefnum útgerðarfélaga á hendur íslenska ríkinu vegna úthlutunar Fiskistofu á aflaheimildum í makríl. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ríkislögmanni að ákvæði laga um meðferð einkamála giltu um stefnur í dómsmálum í vörslu embættisins. Var komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingalög giltu um afgreiðslu embættisins á beiðninni. Úrskurðarnefndin taldi enn fremur að almenningur ætti ríkan rétt til aðgangs að stefnunum enda væri þar krafist að íslenska ríkið greiði skaðabætur á þeim grundvelli að úthlutun aflaheimilda hefði ekki verið lögum samkvæmt. Ríkislögmanni væri því aðeins heimilt að afmá upplýsingar úr stefnunum sem felldar yrðu undir 9. gr. upplýsingalaga, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi tilgreindar upplýsingar vera mikilvægar virkar upplýsingar um fjárhags- eða viðskiptahagsmuni útgerðarfélaganna og falla þar af leiðandi undir 9. gr. upplýsingalaga. Að öðru leyti komst nefndin að þeirri niðurstöðu að kærandi ætti rétt til aðgangs að stefnunum.
-
15. apríl 2020 /885/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020
Í málinu hafði embætti ríkislögmanns synjað beiðni blaðamanns um aðgang að stefnum útgerðarfélaga á hendur íslenska ríkinu vegna úthlutunar Fiskistofu á aflaheimildum í makríl. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það með ríkislögmanni að ákvæði laga um meðferð einkamála giltu um stefnur í dómsmálum í vörslu embættisins. Var komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingalög giltu um afgreiðslu embættisins á beiðninni. Úrskurðarnefndin taldi enn fremur að almenningur ætti ríkan rétt til aðgangs að stefnunum enda væri þar krafist að íslenska ríkið greiði skaðabætur á þeim grundvelli að úthlutun aflaheimilda hefði ekki verið lögum samkvæmt. Ríkislögmanni væri því aðeins heimilt að afmá upplýsingar úr stefnunum sem felldar yrðu undir 9. gr. upplýsingalaga, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi tilgreindar upplýsingar vera mikilvægar virkar upplýsingar um fjárhags- eða viðskiptahagsmuni útgerðarfélaganna og falla þar af leiðandi undir 9. gr. upplýsingalaga. Að öðru leyti komst nefndin að þeirri niðurstöðu að kærandi ætti rétt til aðgangs að stefnunum.
-
15. apríl 2020 /884/2020. Úrskurður frá 1. apríl 2020
Kærð var ákvörðun Borgarbyggðar um að synja beiðni kæranda um aðgang að gögnum. Úrskurðarnefndin féllst á rétt kæranda til aðgangs að samningi Borgarbyggðar við lögmannsstofu vegna málarekstrarins og minnisblaði sveitarfélagsins með upplýsingum um lögmannskostnað vegna tiltekinna ára. Nefndin vísaði beiðni kæranda um aðgang að sundurliðuðum heildarkostnaði vegna dómsmála milli hans og sveitarfélagsins aftur til Borgarbyggðar.
-
14. apríl 2020 /Nr. 150/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki, sbr. 62. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
14. apríl 2020 /883/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020
Í málinu var leyst úr rétti kæranda til aðgangs að skýrslu vegna athugunar á innra starfsumhverfi tiltekins skóla á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi rétt kæranda til þess að geta kynnt sér niðurstöðu athugunarinnar og forsendur hennar vega þyngra en réttur þeirra sem tjáðu sig við gerð skýrslunnar af því að efni hennar færi leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að skýrslunni án útstrikana.
-
14. apríl 2020 /882/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020
Kærð var afgreiðsla fjármála- og efnahagsráðuneytisins á beiðni um aðgang að tölvupóstssamskiptum ráðuneytisins við embætti ríkislögmanns. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með ráðuneytinu að tölvupóstsamskiptin væru undanþegin upplýsingarétti á grundvelli 3. tölul. 6. gr. upplýsingalaga þar sem í þeim færi fram ráðagerð í tengslum við höfðun dómsmáls.
-
14. apríl 2020 /881/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020
Hafnað var kröfu um endurupptöku mála úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 19050024 og 19060008, sem lauk með úrskurðum nr. 829/2019 og 380/2019, þar sem skilyrði stjórnsýsluréttar um endurupptöku máls voru ekki talin vera fyrir hendi.
-
14. apríl 2020 /880/2020. Úrskurður frá 24. mars 2020
Deilt var um afgreiðslu Fjársýslu ríkisins á beiðni Neytendasamtakanna um upplýsingar um hvort tiltekið fyrirtæki hafi greitt stjórnvaldssektir. Fjársýsla ríkisins bar því við að ekki væru fyrirliggjandi gögn með þeim upplýsingum sem óskað væri eftir og að stofnuninni væri hvorki skylt að fletta viðkomandi lögaðila upp í gagnagrunni stofnunarinnar, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, né heimilt skv. 9. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að gögn með upplýsingunum væru ekki fyrirliggjandi þar sem af svari stofnunarinnar mætti ráða að unnt væri að fletta viðkomandi lögaðila upp í kerfi stofnunarinnar. Þá taldi nefndin að stofnuninni hefði ekki verið heimilt að synja beiðninni á þeirri forsendu að upplýsingar um meðferð í málum einstakra lögaðila féllu almennt og án frekari atviksbundinnar athugunar undir 9. gr. upplýsingalaga. Þar sem mat á efni umbeðinna gagna hafði ekki farið fram var kærunni vísað til nýrrar meðferðar hjá stofnuninni.
-
08. apríl 2020 /Nr. 138/2020 Úrskurður
Beiðni kærenda um endurupptöku er samþykkt. Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Grikklands eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar.
-
-
-
-
08. apríl 2020 /Nr. 137/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 61. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
08. apríl 2020 /Nr. 144/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 61. gr. laga um útlendinga er staðfest.
-
08. apríl 2020 /Nr. 140/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum vísa honum frá Íslandi er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.
-
08. apríl 2020 /Nr. 133/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest.
-
08. apríl 2020 /Nr. 139/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar.
-
07. apríl 2020 /Kærð ákvörðun Fiskistofu um skriflega áminningu- Úrskurður kveðinn upp 7. apríl 2020
Stjórnsýslukæra. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [A], lögmanns, fyrir hönd [B ehf.], dags. 7. nóvember 2018, þar sem kærð er ákvörðun Fiskistofu, dags. 15. október 2018, um að veita kæranda skriflega áminningu, sbr. 24. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, vegna brota gegn 3. mgr. 18. gr. laga nr. 116/2006, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Ákvörðunin hefur ítrekunaráhrif í tvö ár, sbr. 19. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.
-
02. apríl 2020 /Nr. 134/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa þeim frá Íslandi og ákveða endurkomubann er felld úr gildi.
-
02. apríl 2020 /Nr. 92/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að vísa honum frá Íslandi er staðfest.
-
02. apríl 2020 /Nr. 127/2020 Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað
-
02. apríl 2020 /Mál nr. 545/2019 - Úrskurður
Húsnæðisbætur. Staðfest ákvörðun Íbúðalánasjóðs um endurkröfu ofgreiddra húsnæðisbóta. Eignastaða umfram skerðingarmörk.
-
02. apríl 2020 /Mál nr. 87/2019 - Úrskurður
Málefni fatlaðra. Felld úr gildi synjun Akraneskaupstaðar á beiðni kæranda um að hækka viðmið vegna endurgreiðslu fæðiskostnaðar. Ekki lagaheimild fyrir greiðsluþátttöku í fæðiskostnaði starfsmanna sveitarfélagsins.
-
02. apríl 2020 /Nr. 130/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda og barni hennar um fjölskyldusameiningu, sbr. 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, er staðfest.
-
02. apríl 2020 /Nr. 126/2020 Úrskurður
Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra varðandi umsókn þeirra um alþjóðlega vernd eru staðfestar.
-
02. apríl 2020 /Nr. 135/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum og vísa henni frá Íslandi er staðfest.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 433/2019
Slysatrygging/örorka Felld úr gildi ávörðun Sjúkratrygginga Íslands um 15% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss sem kærandi varð fyrir og varanleg læknisfræðileg örorka ákveðin 22%. Kröfu um greiðslu lögmannsþóknunar var hafnað.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 510/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka og kostnaður Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 7% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss. Staðfest afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands á umsókn um endurgreiðslu kostnaðar vegna heyrnartækis í kjölfar slyssins.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 486/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 5% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss og ákvörðuð 9% varanleg læknisfræðileg örorka.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 526/2019 - Úrskurður
Uppbót/styrkur til bifreiðakaupa Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um mismun á uppbót og styrk til bifreiðakaupa. Skilyrði um verulega hreyfihömlun samkvæmt 3. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 ekki uppfyllt.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 520/2019 - Úrskurður
Umönnunarmat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að ákvarða umönnun sonar kæranda samkvæmt 3. flokki, 35% greiðslur, er staðfest.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 518/2019 - Úrskurður
Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 505/2019 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og örorkustyrk. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt og gögn málsins benda ekki til þess að kærandi búi við örorku sem sé 50% eða meiri.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 403/2019
Læknismeðferð erlendis Staðfest afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands á umsókn kæranda um endurgreiðslu á erlendum tannlæknakostnaði. Vísað frá þeim hluta kæru sem varðar ákvörðun, dags. 14. mars 2019, þar sem kærufrestur var liðinn.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 500/2019 - Úrskurður
Endurhæfingarlífeyrir Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu endurhæfingarlífeyris. Endurhæfingaráætlun var ekki talin uppfylla skilyrði 7. gr. laga um félagslega aðstoð þar sem að hún var hvorki talin nægjanlega umfangsmikil né markviss.
-
01. apríl 2020 /Mál nr. 527/2019
Slysatrygging Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn kæranda um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga. Skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga um slysatryggingar almannatrygginga um skyndilegan utanaðkomandi atburð ekki uppfyllt.
-
27. mars 2020 /Úrskurður nr. 17/2020
Menntaskólinn í tónlist sótti um undanþágu í þremur liðum frá takmörkun á skólastarfi fyrir útskriftarnema. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.
-
27. mars 2020 /Nr. 132/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa henni frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
-
27. mars 2020 /Nr. 131/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa þeim frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
-
-
26. mars 2020 /Mál nr. 557/2019 - Úrskurður
Viðurlög. Ítrekunaráhrif. Ótilkynnt dvöl erlendis. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í þrjá mánuði.
-
26. mars 2020 /Mál nr. 539/2019 - Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í tvo mánuði þar sem kærandi mætti ekki á boðaðan hópfund.
-
26. mars 2020 /Mál nr. 551/2019 - Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í tvo mánuði þar sem kærandi mætti ekki á boðað námskeið.
-
26. mars 2020 /Mál nr. 550/2019 - Úrskurður
Viðurlög. Felld úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótaréttar í tvo mánuði. Annmarkar á málsmeðferð og málinu vísað til nýrrar afgreiðslu stofnunarinnar.
-
26. mars 2020 /Mál nr.512/2019 - Úrskurður
Viðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt í tvo mánuði þar sem kærandi tilkynnti ekki um breyttar aðstæður.
-
26. mars 2020 /Mál nr. 504/2019 - Úrskurður
Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta vegna óvinnufærni kæranda og dvalar erlendis.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 413/2019 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt. Ekki fallist á að um brot á 65. og 76. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 9. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, 28. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og 12. gr. félagsmálasáttmála Evrópu, væri að ræða.
-
25. mars 2020 /Nr. 125/2020 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Grikklands eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar.
-
-
25. mars 2020 /Mál nr. 509/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 10% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss og ákvörðuð 15% varanleg læknisfræðileg örorka.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 484/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 8% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss og ákvörðuð 13% varanleg læknisfræðileg örorka.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 481/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 15% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss og ákvörðuð 18% varanleg læknisfræðileg örorka.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 474/2019 - Úrskurður
Slysatrygging/örorka Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um 5% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
-
25. mars 2020 /Nr. 95/2020 Úrskurður
Ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Grikklands eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar.
-
25. mars 2020 /Nr. 106/2020 Úrskurður
Fallist er á beiðni kærenda um endurupptöku á málum þeirra á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til efnismeðferðar.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 489/2019 - Úrskurður
Örorkumat Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkumat. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 9/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Hönnunarsamkeppni. Forval. Stöðvunarkrafa samþykkt. Kröfu kærenda um stöðvun forvals varnaraðila vegna þátttöku í hönnunarsamkeppni var samþykkt vegna ágalla á forsendum fyrir vali umsókna.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 8/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Örútboð. Rammasamningu. Bindandi samningur. Stöðvunarkröfu hafnað. Kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar vegna örútboðs sem fór fram á grundvelli rammasamnings var hafnað þar sem kominn var á bindandi samningur, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga um opinber innkaup.
-
25. mars 2020 /Nr. 101/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Eistlands er felld úr gildi.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 7/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Fyrirvarar. Stöðvun aflétt. Fallist var á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun útboðs vegna skýrslugerðar fyrir heilbrigðisráðuneytið yrði aflétt.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 5/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Hafnað að aflétta stöðvun samningsgerðar. Hafnað var kröfu varnaraðila um að aflétta banni við samningsgerð í kjölfar innkaupaferlisins „Aðalskipulag Suðurnesjabæjar“.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 560/2019 - Úrskurður
Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um bætur úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að sjúklingatryggingaratvikið hafi leitt til skerðingar á varanlegri getu kæranda til að afla vinnutekna.
-
25. mars 2020 /Mál nr. 559/2019 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Ekki talið að að bótaskylda væri fyrir hendi á grundvelli 1. tölul. 2. gr. laga um sjúklingatrygginu vegan dráttar á greiningu eða þeirrar meðferðar sem kærandi fékk.
-
25. mars 2020 /Nr. 104/2020 Úrskurður
Fallist er á beiðni kærenda um endurupptöku á málum þeirra á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til efnismeðferðar.
-
25. mars 2020 /Nr. 118/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda þau til Grikklands er felld úr gildi.
-
24. mars 2020 /Úrskurður nr. 16/2020
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands sótti um undanþágu frá skólastarfi vegna verkefna og rannsókna nemenda í ýmsum deildum Heilbrigðisvísindasviðs. Ráðuneytið samþykkti hluta beiðninnar en hafnaði henni að öðru leyti.
-
23. mars 2020 /Úrskurður nr. 15/2020
Klassíski listdansskólinn ehf. sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna starfsemi sinnar fyrir nemendur á leik- og grunnskólastigi og fyrir nemendur á listdansbraut til stúdentsprófs. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.
-
23. mars 2020 /Mál nr. 4/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Hönnunarsamkeppni. Forval. Stöðvunarkrafa samþykkt. Kröfu kærenda um stöðvun forvals varnaraðila vegna þátttöku í hönnunarsamkeppni var samþykkt, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.
-
23. mars 2020 /Mál nr. 3/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Með kæru 30. janúar 2020 kærði Verkís hf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Þjóðgarðsins á Þingvöllum (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 21010 „Innheimtuþjónusta fyrir þjóðgarðinn á Þingvöllum“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að útboðið verði fellt úr gildi og lagt fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik. Til vara er þess krafist að „ákvörðun varnaraðila um að hafna því að þeir þjónustuaðilar sem kjósa að nýta núverandi búnað skuli kaupa hann af þjóðgarðinum, á uppreiknuðu kaupverði samkvæmt neysluvísitölu“ verði felld úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að gera slíkar breytingar. Þá er gerð krafa um að kærunefndin veiti álit á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Jafnframt er gerð krafa um málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
-
23. mars 2020 /Úrskurður nr. 14/2020
Skólaskrifstofa Sveitarfélagsins Hornarfjarðar sótti um undanþágu frá takmörkun á skólastarfi vegna fjölda nemenda á tveimur deildum. Ráðuneytið hafnaði beiðninni.
-
20. mars 2020 /Mál nr. 536/2019 - Úrskurður
Felld úr gildi ákvörðun barnaverndarnefndar um lokun máls.
-
20. mars 2020 /Mál nr. 487/2019 - Úrskurður
Staðfestur úrskurður barnaverndarnefndar um umgengni kynmóður við dóttur hennar.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.