Úrskurðir og álit
-
03. mars 2011 /Hafnarfjarðarbær: Ákvörðun um sameiningu skóla. Mál nr. 37/2010
Ár 2011, 14. febrúar er í innanríkisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi ú r s k u r ð u r í stjórnsýslumáli nr. 37/2010 (IRR 10121655) Örn Guðmundsson gegn Hafnarfjarðarbæ I. Kröf)...
-
02. mars 2011 /Mannanafnanefnd, úrskurðir 2. mars 2011
Mál nr. 14/2011 Eiginnafn: Lilla Hinn 2. mars 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 14/2011 en erindið barst nefndinni 15. febrúar: Eiginnafnið Lilla ()...
-
-
28. febrúar 2011 /Mál nr. 4/2010 (frá úrskurðarnefnd frístundahúsamála)
Framlenging leigusamnings um 20 ár.
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 79/2010
Kæranda var ekki veittur kostur á að andmæla ákvörðun Vinnumálastofnunar og var það talinn verulegur ágalli við meðferð málsins. Það var mat úrskurðarnefndarinnar að svo gróflega hafi verið brotið á rétti kæranda til að andmæla hinni kærðu ákvörðun, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga, að óhjákvæmilegt væri að fella hana úr gildi.
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 62/2010
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu: Ágreiningur um endurveitingu ökuréttinda.
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 63/2010
Siglingastofnun Íslands: Ágreiningur um undanþágu vegna skipstjórnarstarfa.
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 68/2010
Umferðarstofa: Ágreiningur um undanþágu frá reglum um gerð og búnað ökutækja.
-
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 101/2010
Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á sama tíma og hún starfaði hjá sveitarfélaginu B samkvæmt samningi um starfsþjálfun skv. 3. gr. reglugerðar um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki. Kæranda var gert að endurgreiða hið ofgreidda fé skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 108/2010
Ekki var talið að kærandi hefði verið boðaður í viðtal með eðlilegum og sanngjörnum hætti þannig að honum hafi verið gert mögulegt að sinna boðun í viðtal við náms- og starfsráðgjafa og ekki talið að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hinni kærðu ákvörðun var því hrundið.
-
24. febrúar 2011 /Mannanafnanefnd, úrskurðir 9. febrúar 2011
Mál nr. 8a/2011 Eiginnafn: Kristofer Hinn 9. febrúar kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 8a/2011 en erindið barst nefndinni 27. janúar: Með úrskurði í mál)...
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 98/2010
Þær ástæður sem kærandi færði fram voru ekki taldar gildar í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysisbætur. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði var staðfest.
-
24. febrúar 2011 /Mál nr. 96/2010
Þær ástæður sem kærandi færði fram voru ekki taldar gildar í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysisbætur. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði var staðfest.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 31/2010: Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 2. desember 2010, kærir Búðarafl sf. ákvörðun Landsvirkjunar um val á tilboði Ístaks hf. í útboðinu Búðarháls Hydroelectric project - Civil Works - BUD-01, No. 20015.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 35/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 29. desember 2010, kærði Icepharma ehf. ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboði í útboði nr. 14920 „Útboð á próteintengdum bóluefnum gegn penumókokkum til notkunar í almennum bólusetningum á Íslandi“.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 28/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 3. nóvember 2010, kærir Íslenska gámafélagið ehf. ákvörðun Reykjavíkurborgar að ganga til samninga við Hlaðbæ Colas hf. í EES útboði nr. 12475 - Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2010-2013, útboð 2.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 35/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 29. desember 2010, kærði Icepharma ehf. ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboði í útboði nr. 14920 „Útboð á próteintengdum bóluefnum gegn penumókokkum til notkunar í almennum bólusetningum á Íslandi“.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 25/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 23. september 2010, kærir EJS ehf. ákvörðun Ríkiskaupa í rammasamningsútboði Ríkiskaupa nr. 14882 um hýsingar og rekstrarþjónustu.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 29/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála
Með bréfi, dags. 23. nóvember 2010, kæra Sólvellir ses. þá ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að telja Umönnun ses. hæfan aðila til að taka þátt í útboði um hjúkrunarheimili á Völlum 7.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 33/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 17. desember 2010, kærði Landsvirkjun hf. ákvörðun Landsnets hf. um val á tilboði í útboði um kaup á rafmagni vegna flutningstapa.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 30/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 30. nóvember 2010, kærði Heflun ehf. ákvörðun Vegagerðarinnar um val á tilboði í útboðinu „Vetrarþjónusta 2010-2014 Rangárvallasýsla og Flói“.
-
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 30/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 30. nóvember 2010, kærði Heflun ehf. ákvörðun Vegagerðarinnar um val á tilboði í útboðinu „Vetrarþjónusta 2010-2014 Rangárvallasýsla og Flói“.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 32/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 8. desember 2010, kærði Verkfræðistofa VSB ehf. ákvörðun Mosfellsbæjar um val á tilboði í útboði á verkfræðihönnun burðarvirkja fyrir hjúkrunarheimili - þjónustusel að Hlaðhömrum í Mosfellsbæ.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 3/2011. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 11. janúar 2011, kærir Hreinsitækni ehf. ákvörðun Reykjavíkurborgar að ganga til samninga við Park ehf. í útboði nr. 12485: Hreinsun gatna og gönguleiða 2011, útboð IV.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 22/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 1. september 2010, kærði Iceland Excursions Allrahanda ehf. ákvörðun Reykjavíkurborgar um val á tilboðum í útboði nr. 12461 „Rammasamningur um hópbifreiðaþjónustu fyrir Reykjavíkurborg“.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 1/2011. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 5. janúar 2011, kærði Inter ehf. ákvörðun Ríkiskaupa um höfnun allra tilboða í útboði nr. 14979 „Skurðborð fyrir skurðstofur kvennadeildar LSH“.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 2/2011. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 11. janúar 2011, kærir Íslenska gámafélagið ehf. ákvörðun Reykjavíkurborgar að ganga til samninga við Park ehf. í útboði nr. 12484: Hreinsun gatna og gönguleiða 2011, útboð III.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 26/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 16. október 2010, kæra Vinnuvélar Reynis B. Ingvasonar ehf. útboð Vegagerðarinnar „Vetrarþjónusta 2010 - 2014, Kross - Lón“.
-
23. febrúar 2011 /Mál nr. 27/2010B. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 24. nóvember 2010, óskaði Reykjavíkurborg eftir endurupptöku á máli kærunefndar útboðsmála nr. 27/2010B, Urð og Grjót ehf. gegn Reykjavíkurborg. Í bréfinu var krafa Reykjavíkurborgar orðuð með eftirfarandi hætti: „Reykjavíkurborg óskar hér með eftir því að tilvitnuð ákvörðun verði endurupptekin með vísan til heimildar í 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.“
-
22. febrúar 2011 /Mál nr. 21/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 26. ágúst 2010, kærði Túnþökusala Kristins ehf. ákvörðun Vegagerðarinnar um val á tilboði í útboðinu „Vetrarþjónusta 2010-2013, Eyjafjörður að vestan“.
-
22. febrúar 2011 /Mál nr. 28/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 3. nóvember 2010, kærir Íslenska gámafélagið ehf. ákvörðun Reykjavíkurborgar að ganga til samninga við Hlaðbæ Colas hf. í EES útboði nr. 12475 - Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2010-2013, útboð 2.
-
22. febrúar 2011 /Mál nr. 8/2010
Umsókn um námsstyrk. Tilefni talið til að rannsaka mál kæranda betur. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi og málinu vísað til löglegrar meðferðar.
-
-
22. febrúar 2011 /Mál nr. 14/2010
Félagsleg heimaþjónusta. Ekki var á það fallist að í málinu lægi raunverulegt mat skv. 28. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Hin kærða ákvörðun var felld úr gildi og málinu vísað aftur til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar til löglegrar meðferðar.
-
22. febrúar 2011 /Mál nr. 21/2010
Staðfest synjun um greiðslu styrks vegna áframhaldandi dvalar í úrræði í öðru sveitarfélagi. Bent á að kæranda stæðu til boða ýmis úrræði í lögheimilissveitarfélagi.
-
22. febrúar 2011 /Reykjavíkurborg: Ágreiningur um skil á útboðslóðum. Mál nr. 76/2009
Ár 2011, 15. febrúar er í innanríkisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi ú r s k u r ð u r í stjórnsýslumáli nr. 76/2009 (IRR10121825) Ragnar Arnarson gegn Reykjavíkurborg I. Kröfur o)...
-
22. febrúar 2011 /Mál nr. 20/2010
Staðfest sú ákvörðun að greiða kæranda allt að hálfri grunnfjárhæð framfærsluaðstoðar.
-
17. febrúar 2011 /Mál nr. 95/2010
Kærandi braut gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun þegar hann hélt af landi brott án þess að láta af því vita fyrir fram, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því bar að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber honum að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann fékk á meðan hann var erlendis, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
17. febrúar 2011 /Mál nr. 126/2010
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þegar kærandi sótti um atvinnuleysisbætur var hún í námi og hafði sótt um nám á næstu önn. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
-
17. febrúar 2011 /Mál nr. 92/2010
Kærandi braut á trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun þegar hann hélt af landi brott án þess að láta af því vita fyrir fram, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því bar að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber honum að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann fékk á meðan hann var erlendis, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
17. febrúar 2011 /Mál nr. 143/2010
Þegar kæra kæranda barst var hinn þriggja mánaða kærufrestur liðinn, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ekkert í gögnum málsins gaf til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæltu með því að kæran yrði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Málinu var vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.
-
17. febrúar 2011 /Mál nr. 106/2010
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ekki var talið að skýringar kæranda á fjarveru hans í fjögur skipti á boðuðu námskeiði réttlættu þá fjarveru. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
17. febrúar 2011 /Mál nr. 84/2010
Kærandi lét Vinnumálastofnun ekki vita af því fyrirfram að hún myndi dvelja erlendis eins og henni bar að gera. Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar leiddi brot þetta til þess að kærandi átti ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að liðnum tveimur mánuðum er ella hefðu verið greiddar bætur fyrir. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
14. febrúar 2011 /Synjun á þátttöku í skólaferðalagi
Hinn 21. október 1997 var kveðinn upp í menntamálaráðuneytinu svohljóðandi ÚRSKURÐUR I. Kæruefni og kröfur. Með bréfi dags. 17. nóvember 1995 kærðu A og B, hér eftir nefnd kærendur, )...
-
-
-
-
07. febrúar 2011 /Stöðvun þátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði vegna tannlækninga
Þann 7. febrúar 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
07. febrúar 2011 /Mannanafnanefnd, úrskurðir 21. janúar 2011
Mál nr. 96/2010 Eiginnafn: Grimmi Hinn 21. janúar 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 96/2010: Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þur)...
-
-
-
07. febrúar 2011 /Úrskurður varðandi samþykki foreldris vegna þátttöku barns í verkefninu Skólapúlsinn
Vakin er athygli á úrskurði Persónuverndar sem felldur var 9. nóvember 2010 í máli þar sem grunnskóla er gerð óheimil öflun viðkvæmra persónupplýsinga um ólögráða barn án samþykkis foreldris, sbr. 7. )...
-
-
04. febrúar 2011 /Mál nr. 83/2010
Mál þetta varðar 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem fjallað er um það þegar starfi eða atvinnuviðtali er hafnað. Ákvörðunin var staðfest.
-
-
04. febrúar 2011 /Mál nr. 86/2010
Kærandi er sjálfstætt starfandi einstaklingur í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. b-lið 3. gr. laganna, eins og þeim lið var breytt með 1. gr. laga nr. 37/2009. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
04. febrúar 2011 /Mál nr. 226/2010
Engin kæranleg stjórnvaldsákvörðun hefur verið tekin í máli þessu og var málinu því vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.
-
04. febrúar 2011 /Mál nr. 154/2010
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun staðfest.
-
03. febrúar 2011 /Höfnun Lyfjastofnunar á beiðni um tímabundið leyfi fyrir lyfjaútibúi
Þann 3. febrúar 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
03. febrúar 2011 /Höfnun Lyfjastofnunar á umsókn um rekstur lyfjaútibús
Þann 3. febrúar 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
03. febrúar 2011 /Höfnun Lyfjastofnunar á tímabundnu leyfi fyrir lyfjaútibúi í flokki 2
Þann 3. febrúar 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
-
-
02. febrúar 2011 /Mál nr. 3/2010
Felld úr gildi ákvörðun umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn kærenda um greiðsluaðlögun á grundvelli b-, c- og f-liðar 2. mgr. 6. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga.
-
02. febrúar 2011 /Mál nr. 12/2010
Hin kærða ákvörðun lýtur að ákvörðun Íbúðalánasjóðs um að hafna áframhaldandi frystingu lána sem hvíla á húsum kæranda og að láta reyna á útgefna bankaábyrgð Íslandsbanka vegna lánanna. Ákvörðunin var staðfest.
-
31. janúar 2011 /Mál nr. 36/2011. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 16. desember 2011, sem barst kærunefnd útboðsmála 20. sama mánaðar, kærir Gámaþjónustan hf. útboð Sveitarfélagsins Árborgar „Söfnun og flutningur úrgangs, moltugerð og þjónusta við gámastöð 2012-2016“.
-
31. janúar 2011 /Mál nr. 39/2011. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 22. desember 2011, kærði Hópferðamiðstöðin ehf. ákvörðun Sambands sunnlenskra sveitarfélaga um að semja við Hópbíla hf. um almenningssamgöngur á Suðurlandi.
-
31. janúar 2011 /Mál nr. 34/2011. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 2. desember 2011, kærði Bílar og fólk ehf. ákvörðun Sambands sunnlenskra sveitarfélaga um að semja við Hópbíla hf. um almenningssamgöngur á Suðurlandi.
-
30. janúar 2011 /Mál nr. 26/2011. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 14. september 2011, kærði Guðmundur Tyrfingsson ehf. ákvörðun Árborgar um að „taka tilboði ÞÁ bíla ehf. um verkhluta 2 og 3“ í útboði kærða nr. 11229: „Útboð á akstri, skólaakstur og hópferðabifreiðaþjónusta fyrir sveitarfélagið Árborg 2011 - 2014“.
-
-
26. janúar 2011 /Ákvörðun Lyfjastofnunar um rekstur lyfjaútibús
Þann 26. janúar 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
26. janúar 2011 /A-356/2011. Úrskurður frá 26. janúar 2011
Kærð var sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja um aðgang að gögnum um beiðni Magma Energy Sweden AB um undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál í tengslum við kaup á hlutabréfum Geysis Green Energy í HS Orku. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Synjun staðfest.
-
26. janúar 2011 /A-355/2011. Úrskurður 26. janúar 2011
Kærður var dráttur og synjun Fjármálaeftirlitsins á beiðni um afrit af þremur bréfum til Íslandsbanka hf., NBI hf. og Nýja Kaupþings banka hf. sem vörðuðu hæfi starfsmanna bankanna. Þagnarskylda. Einkamálefni einstaklinga. Synjun staðfest.
-
21. janúar 2011 /Titill 09120125
Inngangstexti Úrskurður vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að þorskeldi Álfsfells ehf. í Skutulsfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum.
-
13. janúar 2011 /Mál nr. 13/2010
Í 4. tölul. 4. gr. reglugerðar um úrræði til að bregðast við greiðsluvanda vegna lána Íbúðalánasjóðs, nr. 584/2001, kemur fram að skilyrði greiðsluerfiðleikaaðstoðar sé að greiðslubyrði umsækjanda eftir skuldbreytingu og/eða frestun á greiðslum og/eða lengingu lánstíma rúmist innan greiðslugetu. Samkvæmt greiðsluerfiðleikamati yrði greiðslubyrði kæranda umfram getu hans og uppfyllir hann því ekki skilyrði 4. tölul. 4. gr. reglugerðarinnar. Hin kærða ákvörðun var því staðfest. Fimmtudaginn 13. janúar 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 13/2010:
-
-
-
-
-
-
10. janúar 2011 /A-351/20110. Úrskurður frá 10. janúar 2011
Kærð var sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að synja um afhendingu gagna um aðdraganda þess að Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hf. var færður undir skilanefnd. Þagnarskylda. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja.Aðgangur veittur að hluta.
-
10. janúar 2011 /A-354/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011
Kærð var sú ákvörðun Fiskistofu að synja um aðgang að upplýsingum um einstakar landanir erlendra skipa á uppsjávarfiski á Íslandi á árinu 2010 ásamt upplýsingum um hvað greitt var fyrir aflann úr hverri löndun, sundurliðað eftir því til hvers konar vinnslu aflinn fór og hver kaupandi aflans var í hvert sinn. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Þagnarskylda.Aðgangur veittur að hluta.
-
10. janúar 2011 /A-353/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011
Kærð var sú ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins að synja um aðgang að tveimur minnisblöðum ráðuneytisins um jörðina [A] og [B] í Suður-Þingeyjarsýslu. Vinnuskjöl. Synjun staðfest.
-
10. janúar 2011 /A-352/2011. Úrskurður frá 10. janúar 2011
Kærð var sú ákvörðun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps að synja um aðgang að bréfi sem sent var sveitarstjórninni og varðaði jörð kæranda í hreppnum. Kæruheimild. Aðili máls. Aðgangur veittur, frávísun að hluta.
-
-
-
-
30. desember 2010 /Vísun nemanda ótímabundið úr framhaldsskóla
Ár 2010, fimmtudaginn 30. desember, var kveðinn upp í mennta– og menningarmálaráðuneytinu svofelldur úrskurður
-
30. desember 2010 /Mál nr. 24/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 6. september 2010, kærir Þjótandi ehf. ákvörðun Vegagerðarinnar að ganga til samningaviðræðna við Heflun ehf. á grundvelli útboðsins „Vetrarþjónusta 2010-2014, Rangárvallasýsla og Flói“.
-
30. desember 2010 /Mál nr. 27/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 1. nóvember 2010, kærir Urð og Grjót ehf. ákvörðun Reykjavíkurborgar að hafna tilboði kæranda og ganga til samninga við Hlaðbæ Colas hf. í EES útboði nr. 12475 - Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2010-2013, útboð 2.
-
27. desember 2010 /Tafir Landlæknisembættisins í kvörtunarmáli vegna læknamistaka
Þann 27. desember 2010 var í heilbrigðisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
22. desember 2010 /Mál nr. 164/2010
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sbr. einnig 13. og 14. gr. laganna og var hin kærða ákvörðun staðfest.
-
22. desember 2010 /Mannanafnanefnd, úrskurðir 22. desember 2010
Mál nr. 71/2010 Eiginnafn: Reykdal Hinn 22. desember 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 71/2010. Erindið barst nefndinni 17. ágúst en málinu var fres)...
-
22. desember 2010 /Mál nr. 87/2010
Kæran barst að liðnum kærufresti en með tilliti til aðstæðna var litið svo á að það hafi verið afsakanlegt, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Þegar lög nr. 37/2009 gengu í gildi gat kærandi vænst þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar til ársloka 2009. Frekari væntingar gat hann ekki haft nema að því tilskildu að hann myndi stöðva rekstur sinn og skila vottorði þar að lútandi. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
22. desember 2010 /Mál nr. 128/2010
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 13. og 14. gr. laganna og var hin kærða ákvörðun staðfest.
-
22. desember 2010 /Mál nr. 125/2010
Ekki var til staðar í máli þessu ágreiningsefni í skilningi 2. mgr. 11. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var málinu því vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.
-
-
-
-
-
20. desember 2010 /A-350/2010. Úrskurður frá 20. desember 2010
Kærð var ákvörðun Seltjarnarnesbæjar um synjun á beiðni um aðgang að samkomulagi milli Seltjarnarnesbæjar og Íslenskra aðalverktaka hf. um skipti hluta af svokallaðri „Lýsislóð“ og lóðarhluta við Hrólfsskálamel ásamt viðaukum og fylgiskjölum. Mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir fyrirtækja og annarra lögaðila. Aðgangur veittur.
-
20. desember 2010 /A-349/2010. Úrskurður frá 20. desember 2010
Kærð var ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um synjun á beiðni um aðgang að athugasemdum sem bárust sveitarfélaginu eftir forstigskynningu á deiliskipulagstillögu og samantekt athugasemda sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar. Stjórnvaldsákvörðun. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.
-
17. desember 2010 /Mannanafnanefnd, úrskurður 17. desember 2010
Mál nr. 91/2010 Eiginnafn: Sefanía Hinn 17. desember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 91/2010 en erindið b)...
-
16. desember 2010 /Titill 09090009
Úrskurður vegna ákvörðunar Umhverfisstofnunar um leyfi til handa ORF Líftækni hf. til útiræktunar á erfðabreyttu byggi.
-
14. desember 2010 /Mál nr. 2/2010
Í máli þessu er ekki til að dreifa kæranlegri ákvörðun á grundvelli 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál og var málinu því vísað frá úrskurðarnefndinni.
-
14. desember 2010 /Mál nr. 3/2010
Kærufrestur skv. 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, var liðinn er kæran barst úrskurðarnefndinni og var máli þessu vísað frá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála.
-
-
14. desember 2010 /Mál nr. 9b/2010
Námsstyrkur. Umsókn kæranda barst eftir tilskilin tímamörk reglna um fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg og kærandi átti rétt til greiðslna hjá Vinnumálastofnun. Hin kærða ákvörðun staðfest.
-
14. desember 2010 /Mál nr. 10b/2010
Fjárhagsaðstoð. Ákvörðun félagsmálastjóra var skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála. Skv. 31. gr. reglna Fjallabyggðar þarf félagsmálanefnd að fjalla um málið áður en unnt er að leggja fram kæru hjá úrskurðarnefndinni. Málinu er að svo stöddu vísað frá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála.
-
-
-
-
-
07. desember 2010 /Mál nr. 82/2010
Kærandi mætti ekki sem skyldi í námskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Þar sem hún hafði áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar sætti hún ítrekunaráhrifum, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og var réttur hennar til atvinnuleysisbóta felldur niður í þrjá mánuði.
-
07. desember 2010 /Mál nr. 85/2010
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var ekki talið að ástæður þess að kærandi ákvað að halda ekki áfram störfum hjá vinnuveitanda sínum gætu talist gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. Niðurstaða Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði var staðfest.
-
07. desember 2010 /Mál nr. 62/2010
Kærandi var skráður í flokk A5 sem sjálfstætt starfandi einstaklingur og var lágmarksviðmiðun fyrir reiknað endurgjald 517 þúsund kr. á mánuði. Kærandi greiddi sér einungis hluta þessara lágmarksviðmiðunarlauna eða 47%. Samkvæmt reglum laga um atvinnuleysistryggingar gat hann því ekki eignast meiri rétt til greiðslna úr atvinnuleysisbótakerfinu og var ákvörðun Vinnumálastofnunar því staðfest.
-
07. desember 2010 /Mál nr. 80/2010
Kærandi þáði atvinnuleysisbætur og lét ekki Vinnumálastofnun vita fyrirfram þegar hann tók að sér tilfallandi verkefni sem verktaki. Með þessu braut hann á skyldum sínum skv. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 3. mgr. 9. gr. sömu laga. Ákvörðun Vinnumálastofnunar var staðfest.
-
07. desember 2010 /Mál nr. 81/2010
Kærandi taldi sig hafa staðfest atvinnuleit sína rafrænt í febrúar og mars 2010. Engin merki fundust í tölvukerfi Vinnumálastofnunar um að kærandi hefði reynt að staðfesta atvinnuleit sína rafrænt. Hin kærða ákvörðun var því staðfest með vísan til 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009.
-
07. desember 2010 /Mál nr. 77/2010
Niðurstaða máls þessa byggðist á grundvelli a-liðar 26. gr. laga nr. 134/2009, sbr. 2. málsl. 4. mgr. bráðabirgðaákvæðis VI laga um atvinnuleysistryggingar og var ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest.
-
07. desember 2010 /Mál nr. 39/2010
Kærandi mætti ekki í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun. Með fjarveru sinni brást hann skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar var staðfest.
-
07. desember 2010 /Mál nr. 76/2010
Kærandi var sjálfstætt starfandi einstaklingur í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og því giltu hinar almennu reglur IV. kafla laganna um réttarstöðu hans. Þar sem hann hafði ekki stöðvað rekstur sinn og lagt fram staðfestingu þess efnis, var rétt af hálfu Vinnumálastofnunar að hafna umsókn hans um greiðslu atvinnuleysisbóta og var hin kærða ákvörðun því staðfest.
-
06. desember 2010 /Hveragerðisbær: Ágreiningur um ráðningu deildarstjóra í grunnskóla. Mál nr. 44/2009
Ár 2010, 6. desember er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi ú r s k u r ð u r í stjórnsýslumáli nr. 44/2009 (SAM 09060070) Sigfríður Sigurgeirsdóttir gegn Hveragerð)...
-
06. desember 2010 /Mál nr. 9/2010
Tímabundinn leigusamningur: Úttekt við skil íbúðar, greiðsla vegna þrifa.
-
-
06. desember 2010 /Mál nr. 3/2010 (frá úrskurðarnefnd frístundahúsamála)
Leiguskilmálar og leiguverð frístundahúsalóðar
-
02. desember 2010 /Synjun námsstyrkjanefndar um greiðslu námsstyrks
Ár 2010, fimmtudaginn 2. desember, var kveðinn upp í mennta- og menningarmálaráðuneytinu svofelldur úrskurður
-
02. desember 2010 /Mannanafnanefnd, úrskurðir 2. desember 2010
Mál nr. 89/2010 Eiginnafn: Eldon Hinn 2. desember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 89/2010 en erindið barst nefndinni 3. nóvember. Eiginnafnið Eldon ()...
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
30. nóvember 2010 /Synjun landlæknis um afhendingu upplýsinga úr sjúkraskrá kærð
Þann 30. nóvember 2010 var í heilbrigðisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
30. nóvember 2010 /Málsmeðferð Landlæknisembættisins í kvörtunarmáli kærð
Þann 30. nóvember 2010 var í heilbrigðisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
24. nóvember 2010 /Synjun námsmannakjara á leikskólagjöldum
Ár 2010, miðvikudaginn 24. nóvember, var kveðinn upp í mennta- og menningarmálaráðuneyti svofelldur úrskurður
-
-
23. nóvember 2010 /Mál nr. 61/2010
Þar sem kærandi hafði fengið greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili sem um ræðir í 4. mgr. bráðabirgðaákvæðis VI við lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, eins og þeim var breytt með lögum nr. 134/2009, átt hún rétt á atvinnuleysisbótum á grundvelli ákvæðisins til 28. febrúar 2010.
-
23. nóvember 2010 /Mál nr. 64/2010
Kærandi nær því ekki að hafa starfað í þrjá mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hún sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta. Hún nær því ekki lágmarki laganna um ávinnslu réttinda og getur ekki talist tryggð innan atvinnuleysisbótakerfisins skv. 15. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
23. nóvember 2010 /Mál nr. 65/2010
Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur á sama tíma og hann var skráður í nám án þess að fyrir lægi námssamningur við Vinnumálastofnun. Hann uppfyllti því ekki skilyrði laganna og var hin kærða ákvörðun því staðfest.
-
23. nóvember 2010 /Mál nr. 72/2010
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í þrjá mánuði var felld úr gildi, þar sem hún byggði á lögum nr. 134/2009 sem höfðu verið í gildi frá 1. janúar 2010, en kærandi hafði tekið á móti greiðslum úr sjúkrasjóði Eflingar fyrir þann tíma.
-
18. nóvember 2010 /A-345/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010
Kærð var sú ákvörðun Biskupsstofu að synja um aðgang að bréfi X til Kirkjuráðs. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.
-
18. nóvember 2010 /A-347/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010
Kærð var sú ákvörðun matsnefndar samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði nr. 61/2006 að synja um afhendingu sundurliðaðra útreikningsforsendna hverrar jarðar í veiðifélagi sem matsnefndin notaði við arðskrármat sitt. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.
-
18. nóvember 2010 /A-346/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010
Kærð var sú ákvörðun Íslandsstofu að synja um aðgang að gögnum um ráðningu framkvæmdastjóra Íslandsstofu. Gildissvið upplýsingalaga. Umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum og gögn sem þær varða. Aðgangur veittur að upplýsingum um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda.
-
18. nóvember 2010 /A-348/2010. Úrskurður frá 18. nóvember 2010
Kærður var dráttur á afgreiðslu Þjóðskrár Íslands á beiðni um afhendingu upplýsinga og afrita gagna sem leiddu til ákvörðunar um breytta skráningu á fasteignamati tveggja eignarhluta kæranda. Gildissvið upplýsingalaga gagnvart stjórnsýslulögum. Frávísun.
-
16. nóvember 2010 /Sýslumaðurinn í Hafnarfirði: Ágreiningur um afturköllun ökuréttinda. Mál nr. 32/2010
Ár 2010, 30. september er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi ú r s k u r ð u r í stjórnsýslumáli nr. 32/2010 (SAM10040035) X gegn sýslumanninum í Hafnarfirði. )...
-
16. nóvember 2010 /Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu: Ágreiningur um veitingu ökuréttinda. Mál nr. 36/2010
Ár 2010, 27. september er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi ú r s k u r ð u r í stjórnsýslumáli nr. 36/2010 (SAM10050025) X gegn lögreglustjóranum á höfuðbo)...
-
15. nóvember 2010 /Mál nr. 16/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 29. júlí 2010, kærir Háfell ehf. ákvörðun Vegagerðarinnar um að ganga til samninga við Ingileif Jónsson ehf. í útboðinu „Hringvegur (1), tvöföldun Fossvellir - Draugahlíðar.“
-
15. nóvember 2010 /Mál nr. 26/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 16. október 2010, kæra Vinnuvélar Reynis B. Ingvasonar ehf. útboð Vegagerðarinnar „Vetrarþjónusta 2010 - 2014, Kross - Lón“.
-
15. nóvember 2010 /Mál nr. 20/2010. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 6. ágúst 2010, kærir Studio Strik ehf. ákvörðun Framkvæmdasýslu ríkisins, fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðuneytis og Fjarðabyggðar, um að veita Einrúmi ehf. fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, sbr. útboð nr. 14838, og í kjölfarið að ganga til samningaviðræðna við Einrúm ehf. á grundvelli útboðsins.
-
15. nóvember 2010 /Mál nr. 25/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með bréfi, dags. 23. september 2010, kærir EJS ehf. ákvörðun Ríkiskaupa í rammasamningsútboði Ríkiskaupa nr. 14883 um hýsingar og rekstrarþjónustu.
-
12. nóvember 2010 /Málsmeðferð landlæknis í kvörtunarmáli kærð
Þann 12. nóvember 2010 var í heilbrigðisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
11. nóvember 2010 /Mál nr. 9/2010
Málskotsheimild kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, sbr. lög nr. 77/2001 og lög nr. 66/2010. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Þar sem ágreiningur í máli þessu fellur utan við valdsvið úrskurðarnefndarinnar, er málinu vísað frá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála.
-
11. nóvember 2010 /Mál nr. 7/2010
Fjárhagsaðstoð. Staðfest vegna þess að kærandi á innlendar innstæður eða verðbréf og ennfremur vegna atvinnu maka.
-
11. nóvember 2010 /Mál nr. 10/2010
Samkvæmt greiðsluerfiðleikamati er greiðslubyrði kæranda ekki umfram greiðslugetu. Hin kærða ákvörðun er því með vísan til 3. tl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar um úrræði til að bregðast við greiðsluvanda vegna lána Íbúðalánasjóðs nr. 584/2001 staðfest, sbr. einnig 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, en sú reglugerð hefur að geyma tæmandi úrræði sem sjóðnum eru tiltæk.
-
-
-
10. nóvember 2010 /Mannanafnanefnd, úrskurðir 10. nóvember 2010
Mál nr. 84/2010 Eiginnafn: Botnía Millinafn: Hrútfjörð Hinn 10. nóvember kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í m)...
-
09. nóvember 2010 /Reykjavíkurborg: Ágreiningur um niðurfellingu fasteignagjalda. Mál nr. 45/2009
Ár 2010, 7. október er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi ú r s k u r ð u r í stjórnsýslumáli nr. 45/2009 (SAM 09060075) Strjúgur ehf. og Hafnarstræti 1 ehf. geg)...
-
05. nóvember 2010 /Mál nr. 1/2010
Byggingarréttur: Svalir, samþykki, kostnaðarhlutdeild. Aðgangur á lóð: Kostnaðarhlutdeild. Einangrun þaks: Kostnaðarhlutdeild, samþykki eftir á. Bætur vegna runna og sandkassa.
-
05. nóvember 2010 /Mál nr. 5/2010
Sameign allra, sameign sumra: Gangvegur aðgengi, endurbætur. Sameign allra, lóð. Bílastæði.
-
05. nóvember 2010 /Mál nr. 7/2010
Heimild eiganda til að láta framkvæma viðgerðir á sameign innan húss og skipta um glugga.
-
-
01. nóvember 2010 /Mál nr. 10/2009: Dómur frá 1. nóvember 2010
Alþýðusamband Íslands f.h. Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Jóhannesar Más Dagbjartssonar gegn Samtökum atvinnulífsins f.h. Háskólans á Bifröst.
-
-
-
26. október 2010 /Mál nr. 47/2010
Kæranda voru veittar atvinnuleysisbætur á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI með lögum um atvinnuleysistryggingar til 28. febrúar 2010. Ákvörðun Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda falli niður frá og með 1. mars 2010 var staðfest.
-
26. október 2010 /Mál nr. 49/2010
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um endurkröfu ofgreiddra atvinnuleysisbóta var staðfest þrátt fyrir að viðurkennt væri af hálfu Vinnumálastofnunar að ofgreiðslan stafaði af mistökum stofnunarinnar.
-
26. október 2010 /Mál nr. 32/2010
Ágreiningur í máli þessu snýst um það hvort kærandi hafi átt rétt til atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 6. ágúst til 28. september 2009, en hann flutti til útlanda 6. ágúst 2009. Kærandi uppfyllti ekki skilyrði þess að Vinnumálastofnun sé heimilt að greiða atvinnuleysisbætur til þess sem er í atvinnuleit erlendis skv. 1. mgr. 42. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var synjun Vinnumálastofnunar um greiðslu bóta því staðfest.
-
26. október 2010 /Mál nr. 66/2010
Kærandi taldi sig hafa staðfest atvinnuleit sína rafrænt í febrúar og mars 2010 en staðfestingin hafi af einhverjum ástæðum ekki borist stofnuninni. Engin merki fundust í tölvukerfi Vinnumálastofnunar um að kærandi hefði reynt að staðfesta atvinnuleit sína rafrænt og hann lagði ekki fram afrit af tölvupósti þar sem fram kæmi að hann hafi staðfest atvinnuleit sína á því tímabili sem um ræðir. Hin kærða ákvörðun var með vísan til 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009 staðfest.
-
26. október 2010 /Mál nr. 94/2010
Með vísan til 2. mgr. 15. gr. laga um atvinnuleysisbætur taldist kærandi hafa áunnið sér 50% bótarétt úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Ákvörðun Vinnumálastofnun var hrundið.
-
26. október 2010 /Mál nr. 36/2010
Mál þetta varðar tekjutengdar atvinnuleysisbætur skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
26. október 2010 /Mál nr. 112/2010
Kærandi var ekki talinn vera í virkri atvinnuleit skv. 13. gr. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu atvinnuleysisbóta því staðfest.
-
26. október 2010 /Mál nr. 35/2010
Mál þetta varðar tekjutengdar atvinnuleysisbætur skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
26. október 2010 /Mál nr. 74/2010
Vegna mistaka Vinnumálastofnunar var bótahlutfall kæranda hækkað úr 84% í 100% í mars 2010. Þessi mistök voru leiðrétt rúmum mánuði síðar. Kærandi telur sig eiga rétt á 100%. Í lögum um atvinnuleysistryggingar eru ákvæði sem mæla fyrir um hvernig meta eigi ávinnslutímabil atvinnuleitanda og hvað skuli gera ef atvinnuleitandi af einhverjum ástæðum fær lægri eða hærri bótagreiðslur en hann á rétt á, sbr. 15. gr. laganna og 39. gr. laganna. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
26. október 2010 /Mál nr. 68/2010
Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi var boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar en mætti ekki. Ekki var talið að skýringar hans réttlættu fjarveru hans á námskeiðinu og var hin kærða ákvörðun því staðfest.
-
26. október 2010 /Mál nr. 20/2010
Í máli þessu reyndi á þágildandi 3. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun var felld úr gildi þar sem við töku hennar var brotið á 10. gr. og 13. gr. stjórnsýslulaga.
-
26. október 2010 /Mál nr. 71/2010
Mistök Vinnumálastofnunar leiddu til þess að atvinnuleitandi fékk greitt hærra bótahlutfall en ella, en Vinnumálastofnun hefur heimild til að breyta ákvörðun sem er röng að efni til sbr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
18. október 2010 /Mál nr. 3/2010
Þinglýst kvöð á fasteign: Búseta 50 ára og eldri, lögmæti hagnýtingar séreignar.
-
-
12. október 2010 /Krafa um ógildingu ákvörðunar Lyfjastofnunar um bann við auglýsingum lyfja
Þann 12. október 2010 var í heilbrigðisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
-
08. október 2010 /Rekstrarstjórn Hafralækjarskóla: Ágreiningur um ráðningu deildarstjóra. Mál nr. 68/2009
Ár 2010, 20. september er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi ú r s k u r ð u r í stjórnsýslumáli nr. 68/2009 (SAM09100009) Gróa Hreinsdóttir gegn rekstrarstjórn)...
-
07. október 2010 /Mál nr. 56/2010
Kærandi greiddi staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi vegna vinnu sinnar, en náði ekki lágmarksviðmiðum í reglum skattyfirvalda fyrir reiknað endurgjald einstaklinga sem starfa við eigin rekstur sem listamenn. Með vísan til h-liðar 1. mgr. 18. gr. og 4. mgr. 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á kærandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta.
-
07. október 2010 /Mál nr. 70/2010
Ástæður þær sem kærandi færði fram fyrir því að hún hætti háskólanámi ekki taldar gildar í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
-
07. október 2010 /Mál nr. 57/2010
Kæranda voru veittar atvinnuleysisbætur á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI með lögum um atvinnuleysistryggingar. Honum stóð til boða að breyta réttarstöðu sinni fyrir 1. júní 2009 en hann kaus að gera það ekki. Þegar lög nr. 37/2009 gengu í gildi gat kærandi vænst þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar til ársloka 2009. Frekari væntingar gat hann ekki haft nema að því tilskildu að hann myndi stöðva rekstur sinn og skila vottorði þar að lútandi. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
07. október 2010 /Mál nr. 60/2010
Þriggja mánaða kærufrestur var liðinn, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var málinu vísað frá.
-
07. október 2010 /Mál nr. 58/2010
Kæranda voru veittar atvinnuleysisbætur á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI með lögum um atvinnuleysistryggingar. Honum stóð til boða að breyta réttarstöðu sinni fyrir 1. júní 2009 en hann kaus að gera það ekki. Þegar lög nr. 37/2009 gengu í gildi gat kærandi vænst þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI með lögum um atvinnuleysistryggingar til ársloka 2009. Frekari væntingar gat hann ekki haft nema að því tilskildu að hann myndi stöðva rekstur sinn og skila vottorði þar að lútandi. Hin kærða ákvörðun var staðfest.
-
07. október 2010 /Mál nr. 59/2010
Kæranda va gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tiltekið tímabil að viðbættu 15% álagi skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
-
-
06. október 2010 /Mannanafnanefnd, úrskurður 6. október 2010
Mál nr. 83/2010 Eiginnafn: Björney Hinn 6. október 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 83/2010 en erindið barst nefndinni þann sama dag: Eiginnafnið)...
-
05. október 2010 /Mál nr. 12/2010
Ástæður fyrir uppsögn á starfi teljast ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.